Eyjakonur höfðu betur gegn deildarmeisturunum í lokaleik tímabilsins Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. apríl 2022 14:31 Harpa Valey Gylfadóttir og liðsfélagar hennar í ÍBV unnu góðan sigur gegn Fram í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Vísir/Hulda Margrét ÍBV vann nauman tveggja marka sigur er liðið tók á móti nýkrýndum deildarmeisturum Fram í lokaleik Olís-deildar kvenna í dag, 24-22. Eyjakonur höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik og náðu fjögurra marka forskoti í stöðunni 8-4 þegar um stundarfjórðungur var búinn af leiknum. Þær náðu mest sjö marka forskoti í stöðunni 12-5, en gestirnir gáfust ekki upp og minnkuðu muninn niður í fjögur mörk áður en gengið var til búningsherbergja, staðan 14-10. Gestirnir í Fram unnu upp forskot Eyjakvenna snemma í síðari hálfleik og minnkuðu muninn í eitt mark. Nær komust þær þó ekki og Eyjakonur héldu eins til tveggja marka forystu út leikinn. ÍBV vann að lokum tveggja marka sigur, 24-22, gegn deildarmeisturum Fram og taka því gott veganesti með sér í úrslitakeppnina. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæsti leikmaður vallarins með átta mörk fyrir ÍBV í dag, en Þórey Rósa Stefánsdóttir var atkvæðamest í liði Fram með fimm mörk. Fram endar tímabilið því í efsta sæti deildarinnar með 31 stig. Eyjakonur enda með 25 stig í fjórða sæti.
Eyjakonur höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik og náðu fjögurra marka forskoti í stöðunni 8-4 þegar um stundarfjórðungur var búinn af leiknum. Þær náðu mest sjö marka forskoti í stöðunni 12-5, en gestirnir gáfust ekki upp og minnkuðu muninn niður í fjögur mörk áður en gengið var til búningsherbergja, staðan 14-10. Gestirnir í Fram unnu upp forskot Eyjakvenna snemma í síðari hálfleik og minnkuðu muninn í eitt mark. Nær komust þær þó ekki og Eyjakonur héldu eins til tveggja marka forystu út leikinn. ÍBV vann að lokum tveggja marka sigur, 24-22, gegn deildarmeisturum Fram og taka því gott veganesti með sér í úrslitakeppnina. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæsti leikmaður vallarins með átta mörk fyrir ÍBV í dag, en Þórey Rósa Stefánsdóttir var atkvæðamest í liði Fram með fimm mörk. Fram endar tímabilið því í efsta sæti deildarinnar með 31 stig. Eyjakonur enda með 25 stig í fjórða sæti. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olís-deild kvenna ÍBV Fram Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira