Að mörgu er að hyggja ef vel á að byggja Ásbjörg Kristinsdóttir skrifar 16. apríl 2022 10:01 Landsvirkjun á og rekur 19 aflstöðvar. Við vitum að ábyrgð okkar er mikil í að tryggja skilvirka orkuvinnslu og framþróun og verkefnin því fjölmörg sem þarf að sinna varðandi eignastýringu stöðvanna, með viðhaldi og endurbótum. Þá er líka ýmislegt er fram undan hjá orkufyrirtæki þjóðarinnar tengt aukinni orkuöflun. Við höfum ekki setið auðum höndum undanfarin ár því á tæpum áratug höfum við gangsett tvær nýjar vatnsaflsstöðvar, eina jarðvarmastöð og reist tvær vindmyllur. Við ætlum að mæta aukinni eftirspurn eftir grænni orku með frekari virkjunum á sviði vatnsafls, vinds og jarðvarma, auk þess sem við horfum til stækkunar- og aflaukningaverkefna á núverandi aflstöðvum. Aukið vatnsrennsli í gegnum virkjanir Landsvirkjunar á komandi áratugum vegna aukinnar jöklabráðnunar rennur ekki óbeislað til sjávar. Á Þjórsársvæði hugum við að verkefnum sem snúa ýmist að endurnýjun á búnaði eða nýjum vélum. Þessi verkefni geta aukið uppsett afl svæðisins um allt að 260 MW. Sum þessara verkefna höfum við þegar hafið en önnur bíða næstu ára. Við skoðum líka ýmsa nýjavirkjunarkosti. Við mat á þeim höfum við sjálfbæra þróun að leiðarljósi og leggjum áherslu á jafnvægi þriggja meginstoða hennar; efnahags, umhverfis og samfélags. Hvammsvirkjun Einn virkjunarkosta er Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár. Undirbúningur hefur staðið í rúm 30 ár og virkjunin er nú í nýtingarflokki í rammaáætlun. Hvammsvirkjun verður áttunda stöðin sem nýtir vatnsfall af Þjórsár- og Tungnaársvæði. Hún er vel staðsett með tilliti til flutnings raforku en ekki verður þörf á því að reisa nýjar flutningslínur fyrir þær 720 GWst sem þessi 95 MW aflstöð mun framleiða. Hvammsvirkjun hefur verið staðfest á bæði aðal- og deiliskipulagi og er mati á umhverfisáhrifum lokið. Helstu sýnilegu mannvirki virkjunarinnar verður stífla, lón og frárennslisskurður og er ljóst að þessi mannvirki munu breyta ásýnd svæðisins. Við höfum við hönnun sett okkur umhverfis- og samfélagsmarkmið og höfum að leiðarljósi að vera í virku samráði við hagaðila, varðveita vistkerfi, lágmarka rask og tryggja líffræðilegan fjölbreytileika vatnalífríkis. Við höfum virkilega vandað okkurvið hönnunina. Hvammsvirkjun verður flott virkjun sem við getum verið stolt af. Þeistareykir Annar virkjunarkostur er stækkun jarðvarmastöðvarinnar á Þeistareykjum. Þar eru nú tvær vélar, með alls 90 MW uppsett afl. Náið samráð var haft við hagsmunaaðila við nýtingu á þessu fallega landsvæði og lögðum við okkur fram í hvívetna að vanda okkur við undirbúning og framkvæmd, svo mikið að eftir því var tekið og hlaut verkefnið gullverðlaun Alþjóðasamtaka verkefnastjórnunarfélaga. Á Þeistareykjum höfum við lagt varfærna nýtingu á jarðvarma svæðisins til grundvallar og hefur reksturinn gengið mjög vel. Við erum að skoða að bæta við þriðju vélinni sem myndi auka uppsett afl um 45 MW. Þá erum við einnig með þar til skoðunar svokallaðar toppþrýstingsvirkjanir sem eru með uppsett afl 5-15 MW. Vindmyllur Við hjá Landsvirkjun ætlum líka að stíga næstu skref í beislun vindorku. Eftir næstum áratugar farsælan rannsóknarrekstur á tveimur vindmyllum við Búrfell erum við reiðubúin. Þar eru tveir kostir fremstir. Annars vegar 150 MW lundur nærri Búrfelli og hins vegar 100 MW lundur við Blöndustöð. Báðir hafa kostirnir fengið umfjöllun í rammaáætlun en setja þarf skýrt regluverk um vindorku ef mögulegt á að vera að mæta aukinni raforkuþörf með þessum hagkvæma virkjunarkosti. Uppbygging innviða Samhliða virkjanaframkvæmdum Landsvirkjunar verður gjarnan mikilvæg uppbygging innviða sem einnignýtast samfélaginu, svo sem vegagerð, brúarsmíði eða styrking á fjarsímasambandi. Á síðasta ári unnum við t.d. að gerð tengivegar frá Þeistareykjum í Mývatnssveit. Að auki höfum við ávallt lagt okkur fram við að mæta áhrifum framkvæmda á samfélagið með mótvægisaðgerðum. Gott dæmi er göngu- og reiðbrú yfir Þjórsá og gerð reiðvegar á sama svæði. Við horfum við framtíðar og byggjum á traustum grunni reynslu og færni. Við öflum orku með framsýni, sjálfbærni og öryggi að leiðarljósi. Höfundur er framkvæmdastjóri sviðs framkvæmda hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landsvirkjun Orkumál Mest lesið Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar