Dómarinn í leik Túnis og Malí fluttur á spítala með sólsting og ofþornun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. janúar 2022 12:30 Hitinn fór eitthvað illa í Janny Sikazwe. getty/Matthew Ashton Janny Sikazwe, sem flautaði tvisvar til leiksloka hjá Túnis og Malí í Afríkukeppninni áður en leiktíminn var runninn út, var fluttur á spítala eftir leikinn. Hann var með sólsting og ofþornun.
Sikazwe var ekki alveg með hlutina á hreinu í leik Túnis og Malí í fyrradag. Hann flautaði fyrst til leiksloka á 86. mínútu og svo aftur þegar tíu sekúndur voru eftir. Túnismenn voru skiljanlega ósáttir enda voru þeir 1-0 undir en manni fleiri. Eftir mikla reikistefnu og rúmum hálftíma eftir að leik lauk var ákveðið að spila þær þrjár mínútur sem Sikazwe átti að bæta við. Ekkert varð þó úr því. Túnisar mættu ekki aftur út á völlinn og fjórði dómarinn dæmdi því Malímönnum sigur, 3-0. Yfirmaður dómaramála í Afríkukeppninni, Essam Abdel-Fatah, kom Sikazwe til varnar og sagði að hann hefði þurft að fara á spítala eftir leikinn vegna sólstings og ofþornunar. Leikurinn fór fram í um 34 stiga hita og miklum raka. „Dómarinn fékk sólsting og ofþornaði sem varð til þess að hann missti einbeitinguna og var fluttur á sjúkrahús,“ sagði Abdel-Fatah. „Þetta varð til þess að hann týndi tímanum á 80. mínútu og hann flautaði af fimm mínútum seinna. Hann hélt áfram eftir ábendingar frá aðstoðarmönnum sínum og flautaði aftur af á 89. mínútu. Eftir alla reikistefnuna átti fjórði dómarinn að klára leikinn en liðin höfnuðu því.“ Sikazwe er einn fremsti dómari Afríku. Hann dæmdi til að mynda úrslitaleik HM félagsliða 2016, úrslitaleik Afríkukeppninnar 2017 og tvo leiki á HM 2018. Sikazwe var hins vegar settur í bann í nóvember 2018 vegna gruns um spillingu.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira