Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður stýrivaxtahækkun Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. nóvember 2021 09:16 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar og Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri muni fara yfir stöðuna á fundinum. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 2,0%.
Klukkan 9:30 hefst vefútsending þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns nefndarinnar og Þórarinn G. Péturssonar, aðalhagfræðingur bankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar, fara yfir þau rök sem að baki liggja og svara spurningum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja. Horfa má á útsendinguna hér fyrir neðan. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar er ítrekað að hún muni beita þeim tækjum sem hún hafi yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma. „Verðbólguhorfur hafa versnað nokkuð frá því í ágúst sem m.a. má rekja til þrálátari alþjóðlegra verðhækkana, hraðari viðsnúnings í innlendum efnahagsumsvifum og hækkunar launakostnaðar. Horfur eru á að verðbólga aukist áfram á næstu mánuðum en taki síðan að hjaðna enda haldist kjölfesta verðbólguvæntinga við markmið.“ Síðasta vaxtaákvörðun Seðlabankans fyrir daginn í dag var 6. október síðastliðinn, en þá var ákveðið að hækka vexti um 0,25 prósent, þannig að meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, yrðu 1,5 prósent. Líkt og sjá má á myndritinu hér fyrir ofan hafa stýrivextir hækkað nokkuð bratt undanfarna mánuði.
Seðlabankinn Efnahagsmál Tengdar fréttir Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,5 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því tvö prósent. 17. nóvember 2021 08:30 Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Fleiri fréttir Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Sjá meira
Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,5 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því tvö prósent. 17. nóvember 2021 08:30