Rúmlega níræð kona ökklabrotin eftir harkalegt dyraat Snorri Másson skrifar 22. október 2021 20:00 Gróft dyraat getur haft grafalvarlegar afleiðingar. Stöð 2/Egill Kona á tíræðisaldri slasaðist alvarlega þegar gert var dyraat á heimili hennar í upphafi viku. Lögreglu hafa verið að berast tilkynningar undanfarið um dyraat, sem er óvenjulega harkalegt vegna tísku á TikTok.
Fyrr í vikunni var konan, sem er á tíræðisaldri, flutt á bráðamóttöku Landspítala vegna ökklabrots. Við skoðun kom í ljós að orsökin var sú að henni hafði orðið svo bylt við við dyraat á heimili sínu að hún datt, með þessum alvarlegu afleiðingum. Þetta var ekkert venjulegt dyraat heldur einhvers konar stökkbreytt útgáfa af þessum gamla hrekk. Fréttastofa hefur haft til umfjöllunar það sem verður hreinlega að kalla bylgju af ólátum sem riðið hefur yfir í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Nú hefur bylgjan breitt úr sér og er orðin vandi í nærrum því öllum hverfum í Reykjavík. Í einu myndbandinu hér að ofan má sjá þegar fjórir piltar ráðast til atlögu að útidyrahurð í fjölbýlishúsi með þeim afleiðingum að hurðin brotnar. Skömmu síðar birti sami notandi myndband af sér og vinum sínum á lögreglustöðinni með þeim skilaboðum að einhver hefði klagað. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru piltarnir þó ekki kallaðir til lögreglu, sem bendir til að heimsókn þeirra þangað kunni í raun að vera sviðsett. Þær upplýsingar fengust þó að á síðustu dögum hafa tvö dyraatstilvik verið tilkynnt til lögreglu, án þess þó að vera tekin sérstaklega til rannsóknar. Ekki liggur fyrir hvort lögregla hafi mál eldri konu sem ökklabrotnaði til rannsóknar. Lokið þessu TikTok! Umræður hafa spunnist á samræðuvettvangi íbúa á Völlunum í Hafnarfirði, þar sem fólk segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við unglinga í hverfinu. Einn íbúinn skrifar að hann hafi haldið að hurðin myndi bresta inn á við þegar dyraat var gert á heimili hans, að dóttir hans hafi grátið vegna hamagangsins og hundurinn falið sig. Í athugasemdum lýsa aðrir því að dóttir þeirra hafi sömuleiðis verið óhuggandi vegna svona dyraats og enn önnur lýsir því að hún hafi stokkið fram þegar hávaðinn heyrðist og séð sökudólgana rjúka á brott á rafmagnshlaupahjóli. Rauður þráður í athugasemdum við færslur um þessa nýju dyraatstísku er tillaga sem ævinlega skýtur upp kollinum, að það ætti hreinlega bara að loka TikTok. Stuðningsmönnum þeirrar tillögu verður líklega ekki að ósk sinni, en hún myndi þó óneitanlega leysa margt í þessu máli: Þessi hegðun á sér upptök á TikTok eins og fjöldi dæmi sanna.
TikTok Samfélagsmiðlar Lögreglumál Hafnarfjörður Reykjavík Eldri borgarar Tengdar fréttir Grófur dyraatsfaraldur skekur heilu hverfin Íbúum í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi er hætt að litast á blikuna vegna nýstárlegs dyraatsfaraldurs, sem gerir oft vart við sig seint á kvöldin. Þetta er sérstaklega gróft dyraat, sem virðist innblásið af TikTok. 19. október 2021 21:00 Unglingar hrella íbúa í Vesturbænum og á Nesinu Íbúar Vesturbæjar og Seltjarnarness hafa tjáð sig um það sem virðist vera alda slæmrar hegðunar unglinga. Unglingum er gefið að sök að berja ítrekað á hurðir og glugga og vekja með því ótta meðal íbúa. 17. október 2021 14:10 Kennarar ráðalausir vegna víðtæks en óskiljanlegs þjófnaðar Það geisar þjófnaðarfaraldur í íslenskum grunnskólum, þar sem eftirsóttasti fengurinn eru fábrotnir innanstokksmunir eins og klukkur eða skilti. Sökudólgarnir eru undir alþjóðlegum áhrifum og æðsta takmark þeirra er að gorta sig af þýfinu á TikTok. 15. september 2021 20:20 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira
Grófur dyraatsfaraldur skekur heilu hverfin Íbúum í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi er hætt að litast á blikuna vegna nýstárlegs dyraatsfaraldurs, sem gerir oft vart við sig seint á kvöldin. Þetta er sérstaklega gróft dyraat, sem virðist innblásið af TikTok. 19. október 2021 21:00
Unglingar hrella íbúa í Vesturbænum og á Nesinu Íbúar Vesturbæjar og Seltjarnarness hafa tjáð sig um það sem virðist vera alda slæmrar hegðunar unglinga. Unglingum er gefið að sök að berja ítrekað á hurðir og glugga og vekja með því ótta meðal íbúa. 17. október 2021 14:10
Kennarar ráðalausir vegna víðtæks en óskiljanlegs þjófnaðar Það geisar þjófnaðarfaraldur í íslenskum grunnskólum, þar sem eftirsóttasti fengurinn eru fábrotnir innanstokksmunir eins og klukkur eða skilti. Sökudólgarnir eru undir alþjóðlegum áhrifum og æðsta takmark þeirra er að gorta sig af þýfinu á TikTok. 15. september 2021 20:20