Tíu HK-konur sendu ÍA niður í fallsæti Valur Páll Eiríksson skrifar 30. ágúst 2021 20:45 HK vann gríðarmikilvægan 2-1 útisigur á ÍA á Akranesi í lokaleik 16. umferðar Lengjudeildar kvenna í fótbolta í kvöld. Bæði lið berjast fyrir lífi sínu í deildinni.
Baráttan um fallið er jöfn og spennandi í deildinni en fyrir leik kvöldsins á Skaganum voru heimakonur í ÍA í 8. sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum á undan HK sem var sæti neðar í fallsæti. Gestirnir úr Kópavogi byrjuðu betur þar sem Ragnheiður Kara Hólm Örnudóttir kom HK 1-0 yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik. Unnur Ýr Haraldsdóttir jafnaði fyrir ÍA á 25. mínútu eftir stoðsendingu Dana Joy Scheriff. 1-1 stóð í hléi en ljóst var að HK myndi þurfa að leika manni færri allan síðari hálfleikinn eftir að Henríetta Ágústsdóttir fékk að líta tvö gul spjöld með tveggja mínútna millibili undir lok fyrri hálfleiks. Danielle Marcano skoraði hins vegar eina mark síðari hálfleiks fyrir tíu leikmenn HK á 57. mínútu og tryggði liðinu 2-1 sigur. HK fer þar með upp fyrir ÍA og sendir Skagakonur niður í fallsæti. Augnablik er á botni deildarinnar með ellefu stig, ÍA þar fyrir ofan með 14 stig, HK með 15 stig í neðsta örugga sæti deildarinnar en Grótta og Grindavík aðeins með stigi meira, 16 stig hvort, í 6.-7. sæti. Tveir leikir eru eftir í deildinni og því sex stig í pottinum.Því geta öll fimm ofannefndu liðin bæði fallið og haldið sæti sínu.
Lengjudeild kvenna ÍA HK Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Sjá meira