Stakk af eftir að hafa keyrt á átta ára barn Samúel Karl Ólason skrifar 8. ágúst 2021 07:38 Þó nokkrir ökumenn voru teknir í gærkvöldi og í nótt fyrir akstur undir áhrifum. Vísir/Vilhelm Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um að ekið hefði verið á átta ára dreng á rafmagnshlaupahjóli í Breiðholti. Ökumaðurinn er sagður hafa keyrt á brott eftir að drengurinn sagði honum að hann hefði meitt sig.
Í dagbók lögreglu segir að drengurinn hafi fundið til í kinn, olnboga og hné. Faðir hans hafi svo flutt hann á Bráðadeild til aðhlynningar. Í nótt barst svo tilkynning um umferðarslys í Reykjavík þar sem bíl hafði verið ekið á umferðarmerki og fleira. Bíllinn var illa farinn en ökumaður hans ók honum af slysstað og á nærliggjandi bílastæði þar sem lögregluþjónar komu að honum. Hann var þá handtekinn vegna gruns um ölvun við akstur. Þá datt maður af hjóli í miðbænum í nótt með þeim afleiðingum að hann braut tönn. Lögreglan segir hann grunaðan um að hafa reynt að stýra hjóli undir áhrifum áfengis. Hann var fluttur á sjúkrahús í sjúkrabíl. Um klukkan fimm í gær barst lögreglunni tilkynning um innbrot í Grafarvogi. Þar var búið að spenna upp glugga og stela verðmætum úr íbúð en eigendur eru erlendis. Í dagbók lögreglu segir að skömmu áður en tilkynning barst hafi par verið handtekið í hverfinu með bakpoka og töskur en þau voru grunuð um þjófnað. Parið hafði meðal annars í fórum sínum gögn sem voru merkt eigendum íbúðarinnar. Þá voru þó nokkrir ökumenn handteknir í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn þeirra hefur aldrei fengið ökuréttindi og annar hefur ítrekað verið sviptur þeim.
Lögreglumál Reykjavík Samgönguslys Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira