Kjartan: Við þurfum að trúa Dagur Lárusson skrifar 12. júlí 2021 22:04 Kjartan Stefánsson er þjálfari Fylkis. Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ósáttur eftir 4-0 tap síns liðs gegn Breiðablik í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Kjartan viðurkenndi að Blikar voru betri en hann var ekki sáttur með að hafa tapað svona stórt. „Fúlt að tapa að tapa svona stórt, en þær voru klárlega betri í dag. Þær voru fljótari og ákveðnari og áttu sigurinn skilið,“ byrjaði Kjartan á að segja. Fylkisstúlkur byrjuðu leikinn nokkuð vel og voru inn í leiknum fyrsta hálftímann en hornspyrnumark Áslaugar Mundu Gunnlaugsdóttur virtist hafa verið vendipunkturinn. „Það var margt alveg ágætt í okkar leik og svona ákveðnir þættir sem voru eflaust betri í þessum leik heldur en í öðrum leikjum. Það er eitthvað sem ég og mitt þjálfarateymi sjáum, en kannski ekki þeir sem horfa bara á leikinn. Við vorum að gera fína hluti en síðan kom hornspyrnumarkið frá Áslaugu og það var smá rothögg.“ Þetta var annar tapleikur Fylkis í röð, en þar á undan var liðið taplaust í þremur leikjum. Kjartan telur að lykilinn að því að komast aftur á gott skrið sé einfaldlega að halda í trúna. „Við verðum bara að halda áfram að trúa og sækja alla þá gleði sem við finnum og hafa gaman að þessu. Ef við gerum það þá kannski fer þetta að falla með okkur en við þurfum vissulega heppni líka,“ endaði Kjartan á að segja. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Pepsi Max-deild kvenna Fylkir Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Kjartan viðurkenndi að Blikar voru betri en hann var ekki sáttur með að hafa tapað svona stórt. „Fúlt að tapa að tapa svona stórt, en þær voru klárlega betri í dag. Þær voru fljótari og ákveðnari og áttu sigurinn skilið,“ byrjaði Kjartan á að segja. Fylkisstúlkur byrjuðu leikinn nokkuð vel og voru inn í leiknum fyrsta hálftímann en hornspyrnumark Áslaugar Mundu Gunnlaugsdóttur virtist hafa verið vendipunkturinn. „Það var margt alveg ágætt í okkar leik og svona ákveðnir þættir sem voru eflaust betri í þessum leik heldur en í öðrum leikjum. Það er eitthvað sem ég og mitt þjálfarateymi sjáum, en kannski ekki þeir sem horfa bara á leikinn. Við vorum að gera fína hluti en síðan kom hornspyrnumarkið frá Áslaugu og það var smá rothögg.“ Þetta var annar tapleikur Fylkis í röð, en þar á undan var liðið taplaust í þremur leikjum. Kjartan telur að lykilinn að því að komast aftur á gott skrið sé einfaldlega að halda í trúna. „Við verðum bara að halda áfram að trúa og sækja alla þá gleði sem við finnum og hafa gaman að þessu. Ef við gerum það þá kannski fer þetta að falla með okkur en við þurfum vissulega heppni líka,“ endaði Kjartan á að segja. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild kvenna Fylkir Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“