Gríðarstór vatnspyttur stækkar og stækkar og ógnar bóndabæ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. júní 2021 09:10 Pytturinn myndaðist í maí síðastliðnum en hefur stækkað síðan og ógnar nú húsinu á jörðinni. AP/Pablo Spencer Stór vatnspyttur sem myndaðist skyndilega á jörð í ríkinu Puebla í Mexíkó í maí síðastliðnum hefur stækkað og stækkað og er nú á stærð við knattspyrnuvöll. Nú er svo komið að jarðvegur undir býlinu á jörðinni er farinn að láta undan.
Yfirvöld í Puebla greindu frá því í gær að þau hefðu bjargað tveimur hundum úr pyttnum en þeir höfðu verið fastir ofan í honum í fjóra daga. Björgunaraðgerðir reyndust erfiðari en ella, þar sem sífellt brotnar úr brúnum pyttsins. Pytturinn er 125 metrar í þvermál og 15 metra djúpur. Hermenn hafa verið sendir á vettvang til að halda forvitnum í hæfilegri fjarlægð, þar sem pytturinn stækkar dag frá degi. „Þetta er ekki ferðamannastaður eða staður til að heimsækja með fjölskyldunni,“ hefur AFP eftir fulltrúa yfirvalda. „Þetta er afar erfiður tími. Þetta er sárt, því þetta er allt sem við eigum,“ segir Magdalena Xalamigua Xopillacle, sem á húsið sem virðist eiga þau örlög í vændum að enda ofan í pyttnum. Sumir íbúa telja orsök pyttsins gríðarleg grunnvatnsnotkun fyrirtækja í nágrenninu. Yfirvöld benda hins vegar á að svo virðist sem straumar leiki um vatnið í pyttnum og því sé orsökin líklega vatnsrennsli neðanjarðar, til dæmis neðanjarðará.
Mexíkó Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira