Tyrkir neita því að þeir hafi snuprað von der Leyen Kjartan Kjartansson skrifar 8. apríl 2021 11:21 Aðeins voru tveir stólar fyrir leiðtogana þegar Charles Michel, forseti leiðtogaráðs ESB, (t.v.) og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, (t.h.) funduðu með Recep Erdogan Tyrklandsforseta (f.m.) á þriðjudag. Vísir/EPA Utanríkisráðherra Tyrklands segir fráleitt að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hafi verið sýnd óvirðing vegna kynferðis hennar á fundi með Recep Erdogan forseta á þriðjudag. Von der Leyen var látin sitja á sófa til hliðar við Erdogan og Charles Michel, forseta leiðtogaráðs ESB.
Uppákoman á fundi leiðtoga Evrópusambandsins með Erdogan í forsetahöllinni í Ankara vakti furðu og gagnrýni. Þau von der Leyen og Michel voru leidd inn í sal til viðræðna við Erdogan en tyrknesku gestgjafarnir höfðu aðeins komið fyrir tveimur stólum. Von der Leyen stóð því álengdar á meðan Erdogan og Michel tóku sæti sín. Síðar sást hún sitja á stórum sófa á meðan karlmennirnir tveir ræddu málin. AP-fréttastofan segir að forseti framkvæmdastjórnarinnar hafi látið vonbrigði sín í ljós. Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, hafnar því að von der Leyen hafi verið mismunað vegna þess að hún er kona. Hann fullyrðir að farið hafi verið eftir óskum Evrópusambandsins um siðareglur fyrir fundinn. „Með öðrum orðum var sætatilhögunin í samræmi við tillögur fulltrúar Evrópusambandsins. Punktur,“ sagði utanríkisráðherrann. Michel sagði í gær að Tyrkir hefðu túlkað siðareglur fyrir fundinn „bókstaflega“. Hann harmaði meðferðina á forseta framkvæmdastjórnarinnar sem hefði jafnvel verið óvirðing sýnd. Michel hefur sjálfur verið gagnrýndur fyrir að standa ekki með von der Leyen. Talsmaður von der Leyen sjálfrar sagði að fyrirkomulagið hefði komið henni á óvart og að hún hefði átt að sitja með þeim Michel og Erdogan. Hún hafi aftur á móti kosið að einblína á efni fundarins frekar en að festa sig í siðareglur.
Tyrkland Evrópusambandið Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira