Fyrsta Súpermannsagan seldist á hundruð milljóna króna Kjartan Kjartansson skrifar 7. apríl 2021 21:51 Vincent Zurzolo, annar eigenda ComicConnect, fyrirtækisins sem bauð upp myndasöguna með blaðið verðmæta. Vísir/AP Ótilgreindur kaupandi festi kaup á eintaki af fyrsta tölublaði myndasögublaðsins Action Comics þar sem ofurhetjan Súpermann birtist í fyrsta sinn fyrir meira en fjögur hundruð milljónir íslenskra króna á uppboði.
Fyrsta tölublað Action Comics kom út árið 1938 og kostaði þá tíu bandarísk sent. Í því var að finna sögu af uppruna Súpermann, síðasta syni plánetunnar Kryptons, sem er sendur til jarðarinnar þar sem hann öðlast ofurkrafta þökk sé geislum sólarinnar. Breska ríkisútvarpið BBC segir að talið sé að aðeins um hundrað eintök af blaðinu séu enn til. Ekki var greint frá nafni kaupandans en hann er sagður tiltölulega nýr í fjárfestingum í ofurhetjusögum. Hann greiddi 3,25 milljónir dollara fyrir blaðið, jafnvirði tæpra 413 milljóna íslenskra króna. Seljandinn, sem átti eintakið aðeins í þrjú ár, hagnaðist um rúmar 127 milljónir íslenskra króna. Með viðskiptunum á uppboðinu varð myndasögublaðið það verðmætasta sinnar tegundar í heiminum. Það er sagt hafa fundist í óaðfinnanlegu ástandi í bunka af myndasögum frá fjórða áratug síðustu aldar.
Bókmenntir Myndlist Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira