Kjartan Henry skoraði er Esbjerg tapaði Íslendingaslagnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. febrúar 2021 20:16 Kjartan Henry skoraði eina mark í 2-1 tapi í kvöld. Esbjerg Alls komu þrír Íslendingar við sögu er Silkeborg lagði Esbjerg í stórleik dönsku B-deildarinnar í kvöld. Nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum í öðru og þriðja sæti deildarinnar.
Nicklas Helenius hefur svo sannarlega reynst happafengur fyrir Silkeborg. Hann hafði skorað tvö mörk í tveimur leikjum frá því hann gekk í raðir félagsins í janúar á þessu ári. Eftir aðeisn nítján mínútna leik í kvöld var Helenius kominn með tvennu og Silkeborg komið tveimur mörkum yfir í þessum mikilvæga leik. Staðan var enn 2-0 í hálfleik gestunum í vil og raunar var hún þannig allt þangað til á 86. mínútu er Kjartan Henry Finnbogason minnkaði muninn. Fleiri urðu mörkin ekki og Silkeborg fagnaði gífurlega mikilvægum 2-1 sigri. Kom så! En mere! pic.twitter.com/sKfeYOpCEk— Esbjerg fB (@EsbjergfB) February 25, 2021 Kjartan Henry lék allan leikinn í liði Esbjerg á meðan Andri Rúnar Bjarnason sat allan tímann á varamannabekk liðsins. Þá er Ólafur Kristjánsson þjálfari liðsins. Patrekur Sigurður Gunnarsson stóð vaktina í marki Silkeborg og Stefán Teitur Þórðarson lék allan leikinn á miðju liðsins. Esbjerg er enn í 2. sæti deildarinnar með 42 stig en Silkeborg er í 3. sæti með 40 stig.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira