75 fangar létu lífið í átökum í Ekvador Atli Ísleifsson skrifar 24. febrúar 2021 12:35 Átökin blossuðu upp í fangelsum í hérðuðum Guayas, Azuay og Cotopaxi vesturhluta og miðju landsins. EPA Að minnsta kosti 75 fangar létu lífið í blóðugum átökum liðsmanna tveggja glæpagengja innan veggja þriggja fangelsa í Ekvador í gær. Fangaverðir þurftu að leita aðstoðar hjá bæði lögreglu og hernum til að ná aftur stjórn á ástandinu í fangelsunum.
Auk þeirra 75 sem létu lífið þá særðist mikill fjöldi til viðbótar, þar á meðal fangaverðir og lögreglumenn. Átökin blossuðu upp í fangelsum í hérðuðum Guayas, Azuay og Cotopaxi vesturhluta og miðju landsins. Talið er að átökin hafi blossað upp eftir að leiðtogi eins glæpagengisins var myrtur í einu fangelsinu, þó að upplýsingar um framvinduna séu mjög á reiki. Edmundo Moncayo, yfirmaður fangelsismála í landinu, segir tvenn glæpasamtök bítast um yfirráð í fangelsum landsins. Átök milli fanga innan fangelsa í Ekvador eru tiltölulega algeng, en á síðasta ári lét 51 maður lífið í slíkum átökum. Flest fangelsi í Ekvador eru yfirfull líkt og í mörgum öðrum ríkjum Suður-Ameríku. Alls búa um 17 milljónir manna í Ekvador og telja fangarnir nú um 38 þúsund. Yfirvöld hafa reynt að halda fjölda þeirra sem afplána dóma í skefjum síðustu mánuði vegna kórónuveirunnar.
Ekvador Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Sjá meira