Yfirgnæfandi meirihluti þingsins samþykkti að ákæra Støjberg Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. febrúar 2021 17:40 Inger Støjberg er fyrrverandi ráðherra innflytjendamála í Danmörku. EPA Meirihluti þingmanna danska þingsins hefur samþykkt tillögu um að Inger Støjberg, fyrrverandi innanríkisráðherra og ráðherra innflytjendamála, skuli stefnt fyrir Ríksrétt. Atkvæði voru greidd um það hvort Støjberg skildi ákærð fyrir Ríkisrétti og var það samþykkt með atkvæðum 139 þingmanna en þrjátíu þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Henrik Dam Kristiensen þingforseti mun nú vísa málinu til Thomas Rørdam forseta Hæstaréttar. Rannsóknarnefnd þingsins tilkynnti í síðasta mánuði að Støjberg hafi í ráðherratíð sinni, árið 2016, gefið út ólögleg tilmæli um að láta aðskilja gifta hælisleitendur sem væru yngri en átján ára við komuna til Danmerkur. Støjberg vildi ekki tjá sig um málið þegar danska ríkisútvarpið, DR, óskaði eftir því eftir að niðurstaðan lá fyrir. Þetta verður sjötta málið í sögu Danmerkur sem fer fyrir Ríkisrétt en aðeins annað málið sem fer fyrir réttinn á síðustu hundrað árum. Ríkisréttur Danmerkur líkist að miklu leyti Landsdómi á Íslandi. Ríkisréttur Danmerkur er skipaður þrjátíu mönnum – fimmtán dómurum Hæstaréttar og fimmtán einstaklingum sem kosnir eru af þjóðþinginu. Inger Støjberg lét nýverið af varaformennsku í Venstre eftir deilur innan flokksins.
Danmörk Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira