Kjartan ekki til Íslands strax en ætlar upp með Ólafi Sindri Sverrisson skrifar 1. febrúar 2021 09:18 Kjartan Henry Finnbogason er orðinn leikmaður Esbjerg. mynd/esbjerg Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason hefur fundið sér nýtt félag í Danmörku. Hann skrifaði undir samning við Esbjerg og gildir samningurinn út yfirstandandi leiktíð.
Kjartan var áður hjá Horsens í Danmörku en fékk samningi sínum við félagið rift fyrir helgi, af fjölskylduástæðum. Íþróttastjóri Horsens sagði félagið hafa orðið við beiðninni svo að Kjartan gæti komist heim til Íslands. Nú er Kjartan hins vegar orðinn leikmaður Esbjerg sem leikur í næstefstu deild Danmerkur, undir stjórn Ólafs Kristjánssonar. Fyrir hjá félaginu er annar íslenskur markaskorari, Andri Rúnar Bjarnason. Esbjerg er í baráttu um að komast upp í dönsku úrvalsdeildina en liðið er jafnt Viborg á toppnum eftir 16 umferðir, með 38 stig, sjö stigum á undan næsta liði sem er Silkeborg. „Esbjerg er stórt félag sem á heima í efstu deild, svo að þegar sá möguleiki bauðst að spila hérna gat ég ekki sagt nei. Ég hef nokkrum sinnum farið upp um deild á mínum ferli og ég er með það markmið að gera það aftur með mínum nýju liðsfélögum. Ég mun leggja allt í sölurnar til þess,“ sagði Kjartan sem verður 35 ára í sumar. Miðað við að Kjartan verði hjá Esbjerg út leiktíðina mun hann væntanlega ekki spila á Íslandi fyrr en í fyrsta lagi í júlí. Kjartan Henry hóf leiktíðina sem leikmaður Vejle í dönsku úrvalsdeildinni, eftir að hafa orðið markakóngur þegar Vejle komst upp úr 1. deild í fyrra. Hann rifti hins vegar samningnum við Vejle eftir að hafa verið settur í hlutverk varamanns í upphafi leiktíðar, og fór til Horsens en þar hafði hann áður leikið í fjögur ár frá 2014-2018.
Danski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Sjá meira