Hlé gert á leitinni í Ask Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 4. janúar 2021 06:45 Björgunarmenn sjást hér að störfum í Ask í gær. Að minnsta kosti þriggja er enn saknað. AP/Jil Yngland Leitað var í alla nótt í rústum húsanna sem eyðilögðust í skriðuföllunum í norska bænum Ask á dögunum. Sjö hafa fundist látin eftir hamfarirnar og að minnsta kosti þriggja er enn saknað.
Sjöundi einstaklingurinn fannst í gærkvöldi og leitin í nótt bar engan árangur, að því er norska ríkisútvarpið greinir frá. Nú hefur verið ákveðið að gera hlé á leitinni í nokkra klukkutíma, en það mun vera til þess að hundar sem notaðir eru við leitina eigi meiri möguleika á að finna fólk, þegar leit verður fram haldið. Enn binda menn vonir við að fólk finnist á lífi í rústunum en skriðan féll þann þrítugasta desember síðastliðinn. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð frá því sem var og hefur lögregla sagt að enn sé haldið í vonina um að einhver finnist á lífi, þótt hún dvíni með hverjum deginum sem líður. Björgunaraðilar hafa notið liðsinnis norska hersins við leitina, og þá hafa starfsmenn almannavarna dælt vatni úr tjörn sem hefur byrjað að renna inn á hamfarasvæðið og þannig gert leitina enn erfiðari. Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning heimsóttu Ask heim í gær og ræddu við fólk sem missti allt sitt í hamförunum.
Noregur Leirskriður í Ask Mest lesið Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Innlent „Við vitum að áföllin munu koma“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Sjá meira