Sádi-Arabía afnemur hýðingar sem refsunarform Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. apríl 2020 21:32 Raif Badawi var dæmdur fyrir tölvuglæpi og að hafa smánað Íslam og átti að fá 1.000 svipuhögg fyrir glæpina. EPA/PATRICK SEEGER
Sádirabía mun afnema hýðingar sem refsunarform, samkvæmt lagafrumvarpi sem fréttamiðlar þar í landi hafa í höndum. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins. Tilmæli sem gefin voru út af hæstarétti Sádi-Arabíu segja að í stað hýðinga verði fangelsun eða sektum beitt. Þá segir að breytingarnar séu hluti af mannréttindaúrbótum sem Salman konungur og sonur hans, Mohammed bin Salman krónprins, hafa staðið fyrir. Sádi-Arabía hefur verið harðlega gagnrýnd vegna fangelsunar og dauðfalls blaðamannsins Jamal Khashoggi. Síðasta hýðingin í Sádi-Arabíu vakti mikla athygli árið 2015 þegar bloggarinn Raif Badawi var hýddur á almannafæri eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tölvuglæpi og að hafa smánað Íslam. Hann var dæmdur til að vera hýddur þúsund sinnum í heildina og átti að hýða hann vikulega en vegna alþjóðlegrar fordæmingar á dómnum og frétta sem bárust um að hann hafi nærri dáið var sá hluti refsingarinnar felldur niður.
Sádi-Arabía Mest lesið Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Innlent Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja Innlent Reiði meðal lögreglumanna Innlent Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Erlent Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Veður Fleiri fréttir Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre „Samþykki“ tekið upp í frönskum lögum í kjölfar Pelicot málsins Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Fjórir látnir á Jamaíku og tuttugu í Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Bandidos-bifhjólagengið bannað í Danmörku Prófuðu annað kjarnorkuknúið vopn Sjá meira