Maduro ákærður fyrir fíkniefnabrot í Bandaríkjunum Kjartan Kjartansson skrifar 26. mars 2020 14:57 Maduro forseti með grímu fyrir vitum sér á fundi um kórónuveirufaraldurinn í Miraflores-forsetahöllinni í Caracas á sunnudag. Hann verður ákærður fyrir fíkniefnabrot í Bandaríkjunum. Vísir/EPA
Alríkissaksóknarar í Bandaríkjunum ætla að ákæra Nicolas Maduro, forseta Venesúela, fyrir fíkniefnabrot í dag. Ákæran er sögð afurð rannsóknar sem teygði anga sína til Washington, New York og Flórída. Búist er við því að á annan tug venesúelskra embættismanna og liðsmanna kólumbísku skæruliðasveitanna FARC verði ákærður í málinu. New York Times fullyrðir að bandaríska dómsmálaráðuneytið ætli að tilkynna um ákærurnar í dag. Lítið liggi enn fyrir um efni ákæranna annað en að þær varði svonefnd fíkniefnahryðjuverkabrot og samsæri um innflutning á kókaíni til Bandaríkjanna. Á meðal þeirra sem eru sagðir verða ákærðir með Maduro eru venesúelskir leyniþjónustumenn, ríkisstjórn landsins og liðsmenn FARC. Skæruliðasamtökin eru lengi talin hafa fjármagnað sig með fíkniefnasmygli. Bandaríkjastjórn viðurkennir Maduro ekki sem forseta Venesúela eftir umdeildar forsetakosningar í landinu árið 2018. Þess í stað telja þau Juan Guaidó réttmætan forseta Venesúela. Hann var forseti þingsins þegar hann lýsti sjálfan sig lögmætan forseta í janúar í fyrra.
Venesúela Bandaríkin Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira