Jafnaðarmenn stærstir en áframhaldandi stjórn Orban líklegust Atli Ísleifsson skrifar 7. desember 2020 14:15 Ludovic Orban fór við embætti forsætisráðherra Rúmeníu fyrir um ári síðan. AP Jafnaðarmannaflokkurinn, sem hefur verið í stjórnarandstöðu, fékk flest atkvæði í rúmensku þingkosningunum sem fram fóru um helgina.
Þegar búið var að telja um 80 prósent atkvæða virðast Jafnaðarmenn hafa fengið rétt tæplega 30 prósent þingsæta í báðum deildum þingsins. Ólíklegt þykir þó að Jafnaðarmenn muni stýra landinu á nýju kjörtímabili. Heimsfaraldur kórónuveirunnar setti sinn svip á kosningarnar og hefur kosningaþátttaka aldrei verið minni, en hún var einungis um 33 prósent. Frjálslyndi þjóðarflokkurinn (PNL), flokkur Ludovic Orban forsætisráðherra, hlaut tæplega 25 prósent atkvæða og miðjubandalagið USR-Plus rúmlega 15 prósent. USR-Plus þykir líklegur samstarfsflokkur Orbans og hefur forsætisráðherrann sagt nauðsynlegt að ný stjórn taki fljótt til starfa. Aðstæður í samfélaginu krefjist þess og segir Orban fjóra flokka líklega til að vilja mynda meirihluta með PNL. Orban hefur sætt mikilli gagnrýni vegna viðbragða stjórnarinnar við kórónuveirufaraldrinum, en hann nýtur þó enn talsverðra vinsælda vegna loforða sinna um að nútímavæðingu og aukna þátttöku í Evrópusamstarfi. PNL og USR-Plus, sem þykja líkleg til að mynda saman stjórn, lögðu í kosningabaráttu sinni einnig áherslu á að efla heilbrigðis- og menntakerfi landsins. Jafnaðarmenn í Rúmeníu unnu stórsigur í kosningunum 2016, en PNL myndaði minnihlutastjórn fyrir um ári eftir röð spillingarmála tengdum Jafnaðarmannaflokknum.
Rúmenía Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira