Föstudagsplaylisti Ragnheiðar Elísabetar Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 6. nóvember 2020 16:16 Ragnheiður Elísabet í Mengi, þar sem hún starfar sem verkefnastýra. Daniele Girolamo
Ragnheiður Elísabet setti saman föstudagslagalista vikunnar fyrir Vísi. Á lista Ragnheiðar kennir ýmissa grasa en hún segir að tónlistarsmekk sínum mætti lýsa sem margbrotnum persónuleika. Listinn er meðal annars samsettur af hinum ýmsu listamönnum sem hún hefur unnið með í gegnum árin í listhúsinu Mengi en þar starfar hún sem verkefnastýra. Á listanum eru líka „gullmolar frá Spilverkinu, ömmu lo-fi, Trabant og nýrri plötuútgáfu.“ Útgáfan sem um ræðir heitir Agalma og var stofnuð af Ragnheiði og kollega hennar Guðmundi Arnalds árið 2019. „Agalma plötuútgáfa leggur áherslu á spunalist og má vænta safnplötu frá henni um jólin þar sem margir listamannanna sem gefnir hafa verið út koma saman í svokallaðri sóttkvíarsnældu,“ segir Ragnheiður. Í kófinu hefur Mengi ekki setið auðum höndum að sögn Ragnheiðar og hefur staðurinn sent út úr tómu Mengi á meðan á samkomubanni stendur, undir yfirskriftinni Tómamengi. Um þessar mundir stundar Ragnheiður nám við Hússtjórnarskólann í Reykjavík og mælir sérstaklega með lagalistanum fyrir þá sem stunda þá stórskemmtilegu iðju að vefa eða vinna í öðru handverki. Listinn ætti að vera um það bil af þeirri lengd „sem tekur að prjóna vinstri vettling.“ „Í Bíó Paradís er nú í sýningu ný heimildarmynd um skólann fyrir áhugasama en þar er farið yfir sögu hans og viðtöl tekin við fyrrum nemendur sem hafa stundað námið sem senn gæti runnið sitt skeið,“ segir Ragnheiður að lokum.
Föstudagsplaylistinn Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira