Skip á vegum Eimskips rakst í hafnarbakka í Noregi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 10. september 2020 21:58 Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Vísir/Vilhelm
Flutningaskipið Svartfoss, sem er í eigu Eimskips, lenti harkalega á hafnarbakkanum við í Skattøra í Noregi í kvöld. Þetta kemur fram á staðarmiðlinum iTromsø. Þar segir að hafnarbakkinn hafi orðið fyrir talsverðu tjóni en engar tilkynningar um slys á fólki hafi borist lögreglu. Þó var viðbúnaður slökkvi- og sjúkraliðs á bryggjunni. Skipið, sem er um 80 metrar að lengd, er sagt hafa setið fast upp við hafnarkantinn eftir að hafa rekist þar í, en dráttarbátur hafi verið kallaður út til þess að draga skipið frá hafnarbakkanum. iTromsø hefur þá eftir Lennart Steffensen, yfirmanni hjá lögreglunni í Tromsø, að rannsókn á tildrögum atviksins væri hafin, til að mynda með skýrslutökum af skipverjum. Þá hafi slökkviliðinu verið falið að kanna hvort atvikið kynni að hafa leitt til mengandi leka í höfnina, en í ljós hafi komið að ekkert benti til slíks leka eða að gat hefði komið á skrokk skipsins. Þá kemur fram að Lára Konráðsdóttir, forstöðumaður Eimskips í Noregi, hefði lítið getað tjáð sig um málið. Svartfoss er með heimahöfn í Tromsø.
Noregur Skipaflutningar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira