„Kröpp og dýpkandi“ lægð nálgast landið Kristín Ólafsdóttir skrifar 18. febrúar 2020 08:23 Á morgun hvessir allhressilega að austan. Vísir/vilhelm
Gular hríðarviðvaranir taka gildi í nokkrum landshlutum á morgun. „Kröpp og dýpkandi“ lægð nálgast landið, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands, og mun þá hvessa „hressilega“ að austan, síðar norðaustan, og fer að snjóa sunnan- og austanlands. Í dag má búast við norðankalda og dálitlum éljum norðan til framan af degi en snýst svo í sunnanátt með lítilsháttar slyddu eða snjókomu sunnan- og vestanlands. Léttir til fyrir norðan og austan. Gular viðvaranir taka svo gildi á Suðurlandi, Suðausturlandi og Austfjörðum síðdegis á morgun. Búast má við hríðarbyl, slæmu skyggni og vindi 15-25 m/s með hviðum allt að 40 m/s. Viðvaranirnar verða í gildi fram á kvöld. „Fer þó smám saman hlýnandi og rignir við ströndina um kvöldið. Heldur hægari vindur úrkomuminna á vesturhelmingi landsins, en bætir vel í um kvöldið. Áfram stíf norðan- og norðaustanátt á fimmtudag með éljum víða á landinu, en bjartviðri syðra og kólnar heldur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt, 15-25 m/s eftir hádegi, hvassast við fjöll SA til. Víða snjókoma eða slydda, einkum á A-verðu landinu, en rigning við ströndina um kvöldið. Hlýnar í veðri og hiti 0 til 5 stig með kvöldinu. Á fimmtudag: Norðaustan 15-23 m/s norðvestanlands, en annars hægari. Snjókoma á norðanverðu landinu, en él syðra. Hiti kringum frostmark. Á föstudag: Stíf austlæg átt með snjókomu eða éljagangi. Vægt frost víða hvar. Á laugardag: Snýst í norðaustanátt með snjókomu víða um land, en léttir til SV-lands og kólnar í veðri. Á sunnudag: Líklega hæg vestlæg átt með éljum, einkum V-lands og frosti 1 til 6 stig. Á mánudag: Útlit fyrir stífa suðvestanátt með éljum, en bjartviðri N- og A-lands og köldu veðri.
Veður Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira