Stefnir á að kynna nýja stjórn fyrir mánaðamót Atli Ísleifsson skrifar 21. janúar 2020 12:40 Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs. epa
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, segist hafa fundað reglulega með leiðtogum Kristilega þjóðarflokksins og Venstre síðustu daga og að hún stefni á að geta kynnt nýja ríkisstjórn til leiks fyrir mánaðamót. Solberg þarf nú að fylla skarð ráðherra úr röðum Framfaraflokksins, en formaður Framfaraflokksins greindi frá því í gær að flokkurinn myndi hverfa úr ríkisstjórn. Vegur þar þyngst embætti fjármálaráðherra sem Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins, hefur skipað síðustu rúmu sex árin. Ráðherrar Framfaraflokksins munu áfram gegna embættunum þar til að ný stjórn tekur við, en Solberg mun áfram leiða ríkisstjórn Hægriflokks síns, Kristilega þjóðarflokksins og Venstre. Jensen hefur sagt að það sé eðlilegt að þingmenn Framfaraflokksins munu áfram styðja við bakið á Solberg sem forsætisráðherra þó að flokkurinn hverfi úr stjórn. Solberg sé rétta manneskjan til að leiða landið á þessum tímapunkti. Fulltrúar Framfaraflokksins hafa gegnt embætti fjármálaráðherra, orku- og olíumálaráðherra, samgönguráðherra, ráðherra málefna aldraðra og lýðheilsu, sjávarútvegsráðherra, dómsmálaráðherra og ráðherra málefna almannaöryggis.
Noregur Tengdar fréttir Norska stjórnin er sprungin Stjórn Ernu Solberg forsætisráðherra Noregs er sprungin. Þetta varð ljóst eftir að tilkynnt var að Framfaraflokkurinn hafði ákveðið að ganga út úr stjórnarsamstarfinu. 20. janúar 2020 13:01 Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira
Norska stjórnin er sprungin Stjórn Ernu Solberg forsætisráðherra Noregs er sprungin. Þetta varð ljóst eftir að tilkynnt var að Framfaraflokkurinn hafði ákveðið að ganga út úr stjórnarsamstarfinu. 20. janúar 2020 13:01