Ellefu látnir eftir íkveikju í fjölbýlishúsi í Tékklandi Atli Ísleifsson skrifar 9. ágúst 2020 08:54 Eldurinn kom upp á elleftu hæð hússins. AP
Ellefu eru látnir eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi í tékkneska bænum Bohumin í gær. Einn hefur verður handtekinn í tengslum við brunann en lögreglu grunar að um íkveikju hafi verið að ræða. Eldurinn kom upp á elleftu hæð þrettán hæða fjölbýlishúss og olli eldurinn mikilli eyðileggingu, en lögregla segir málið minna um margt á eldsvoða sem varð fyrir sjö árum. Bohumin er að finna við pólsku landamærin, um 300 kílómetra austur af höfuðborginni Prag. Héraðsstjórinn Ivo Vondrak segir að tilkynningin hafi borist slökkviliði skömmu fyrir klukkan 18 að staðartíma. Talsmaður slökkviliðs segir að sex manns hafi farist í brunanum sjálfum, þar af þrjú börn. Fimm til viðbótar dóu eftir að hafa stokkið út um glugga af tólftu hæð hússins, og þá slösuðust þrettán manns, þar af tveir slökkviliðsmenn og einn lögreglumaður. Slökkviliðsstjórinn Vladimir Vlcek segir að eldurinn hafi verið óeðlilega fljótur að breiðast út, sem bendi til íkveikju. Lögreglustjóri segir málið minna á íkveikju sem átti sér stað í bænum árið 2013 þar sem sex manns létu lífið í gassprengingu. Sökudólgurinn þá var í hópi hinna látnu þá.
Tékkland Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira