Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 við Grindavík Vésteinn Örn Pétursson skrifar 13. júní 2020 21:46 Fjallið Þorbjörn sést hér bak við Bláa lónið. Vísir/VIlhelm
Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 varð á níunda tímanum í kvöld um 3,7 kílómetrum norður af Grindavík. Mælingar benda til þess að landris sé hafið við fjallið Þorbjörn að nýju. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir einnig að skjálftinn sé hluti af jarðskjálftahrinu sem stendur yfir í nágrenni Grindavíkur, en hrinan hefur verið viðvarandi síðan 30. maí. Um 2.000 skjálftar verið staðsettir þar síðan þá, aðallega smáskjálftar, en nokkrir stærri skjálftar hafa einnig orðið á þessu svæði og fundist í Grindavík. Land hefur risið um 12 sentimetra Í samtali við Vísi segir Hulda Rós Helgadóttir náttúruvársérfræðingur að jarðskjálftavirkni hafi verið viðvarandi á svæðinu, en hafi færst í aukana síðastliðna nótt. Stærsti skjálftinn hafi síðan orðið klukkan 20:27, en hann var eins og áður segir 3,5 að stærð. Fram kemur á vef Veðurstofunnar að mælingar bendi til þess að landris sé hafið að nýju við fjallið Þorbjörn. Hulda segir þá að land hafi risið um 12 sentimetra á svæðinu síðan í janúar. Um sé að ræða þriðja kvikuinnskotið á þessu svæði síðan í janúar og að líkanareikningur bendi til þess að það sé á svipuðu dýpi og fyrri innskot, eða á þriggja til fjögurra kílómetra dýpi. Óvissustig vegna landriss er enn í gildi hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, en hér má nálgast fundargerð vísindaráðs almannavarna vegna Reykjanessskaga og Grímsvatna.
Almannavarnir Grindavík Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Skjálftahrina við Grindavík í morgun Á vef Veðurstofunnar segir að skjálfti af stærðinni 2,8 hafi orðið klukkan 4:44 og annar af stærðinni 2,9 klukkan 6:54. 13. júní 2020 09:24 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira
Skjálftahrina við Grindavík í morgun Á vef Veðurstofunnar segir að skjálfti af stærðinni 2,8 hafi orðið klukkan 4:44 og annar af stærðinni 2,9 klukkan 6:54. 13. júní 2020 09:24