Fjárfesta í Meniga fyrir 1,3 milljarða Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. maí 2020 10:05 Meniga sérhæfir sig í hugbúnaði sem ætlað er að veita fólki betri yfirsýn yfir fjármálin sín.
Alþjóðlegar bankasamsteypur eru meðal þeirra sem hafa fjárfest í íslenska fjártæknifyrirtækinu Meniga fyrir 1,3 milljarða króna. Fyrirtækið hyggst nýta fjármunina til að „styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins í rannsóknum og þróun á hugbúnaði ásamt því að styðja við sölu og þjónustu fyrirtækisins til að mæta aukinni eftirspurn,“ eins og það er orðað í orðsendingu frá Meniga vegna fjárfestingarinnar. Umræddar bankasamsteypur, Groupe BPCE, Grupe Crédito Agrícola og UniCredit, eru meðal viðskiptavina Meniga. Groupe BPCE, næst stærsta bankasamsteypa í Frakklandi, er með um 36 milljón viðskiptavini, Grupo Crédito Agrícola, einn stærsti banki Portúgal, er með 1,5 milljón viðskiptavini og UniCredit starfar í 13 löndum íEvrópu og eru með starfsemi í 18 löndum til viðbótar víðsvegar um heiminn. Unicredit hafði áður fjárfest í Meniga árið 2018. Auk bankasamsteypanna tóku núverandi fjárfestar í fyrirtækinu, Frumtak Ventures, Velocity Capital og Industrifonden, í 1,3 milljarða króna fjárfestingunni. Fjármálabúnaður Meniga er nú aðgengilegur í 30 löndum og hefur fyrirtækið opnað skrifstofur í Lundúnum, Stokkhólmi, Varsjá, Barcelona og Singapúr, auk höfuðstöðvanna í Kópavogi. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 160 í dag.
Íslenskir bankar Tækni Nýsköpun Fjártækni Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira