Handtekinn fyrir að hringja mörg þúsund sinnum í fyrirtæki og kvarta Samúel Karl Ólason skrifar 3. desember 2019 23:33 Lögregluþjónar að störfum í Tokyo. AP/Gregorio Borgia
Lögreglan í Tokyo handtók á dögunum 71 árs gamlan mann sem er sakaður um að hringja alls 24 þúsund sinnum í símafélag sitt og kvarta yfir þjónustu fyrirtækisins. Akitoshi Okamoto er sagður hafa hringt mörg þúsund sinnum í símafélagið KDDI á einungis átta dögum. Sakaði hann félagið um að brjóta gegn samningi sem hann hafði gert við það. Alls hringdi hann 24 þúsund sinnum í félagið á tveimur og hálfu ári.Samkvæmt frétt BBC sneru kvartanir hans að mestu um það að hann gat ekki hlustað á útvarpið í símanum sínum. Lögreglan segir hann hafa móðgað starfsmenn þjónustuvers KDDI ítrekað og krafist þess að fyrirtækið sendi starfsmann heim til sín. Sá ætti að biðja hann afsökunar persónulega. Hann hafi sömuleiðis margsinnis hringt og skellt svo á um leið og einhver svaraði.Okamoto neitar sök og segist vera fórnarlamb í málinu. Forsvarsmenn símafélagsins segjast ekki hafa viljað kæra Okamoto. en símtöl hans hafi verið svo tíð að starfsmenn þjónustuversins hafi átt í erfiðleikum með að aðstoða aðra viðskiptavini. Hann var handtekinn sakaður um að hindra eðlilegan rekstur fyrirtækis.
Japan Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Vučić játar ósigur Erlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira