Clippers stöðvaði sigurgöngu Doncic og félaga Arnar Geir Halldórsson skrifar 27. nóvember 2019 07:30 Frá Dallas í nótt. vísir/getty
Tveir leikir voru á dagskrá NBA deildarinnar í körfubolta í Bandaríkjunum í nótt þar sem tvö af heitustu liðum deildarinnar áttust meðal annars við í Dallas. Þar var Los Angeles Clippers í heimsókn hjá Dallas Mavericks en bæði lið höfðu unnið fimm leiki í röð þegar kom að leiknum. Óhætt er að segja að gestirnir hafi keyrt yfir heimamenn í fyrri hálfleik og lagt þannig grunninn að 15 stiga sigri, 99-114 en staðan í hálfleik var 46-62, Clippers í vil. Stjörnutvíeyki Clippers stóð fyrir sínu þar sem Kawhi Leonard var með 28 stig og Paul George 26. Slóvenska undrabarnið í liði Mavericks var algjörlega óstöðvandi í fimm leikja sigurgöngu Dallas en hann setti 22 stig á töfluna í nótt á meðan Kristaps Porzingis gerði 15 stig auk þess að taka 10 fráköst. Í Denver unnu heimamenn í Denver Nuggets sömuleiðis sjötta leik sinn í röð þegar þeir fengu Washington Wizards í heimsókn. Nikola Jokic með 20 fráköst en aðeins 8 stig á meðan Jerami Grant var stigahæstur í jöfnu liði Nuggets með 20 stig en fjórir leikmenn liðsins skoruðu yfir 15 stig.Úrslit næturinnar Dallas Mavericks 99-114 Los Angeles Clippers Denver Nuggets 117-104 Washington Wizards
NBA Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira