LeBron fór á kostum í fimmta sigri Lakers í röð Arnar Geir Halldórsson skrifar 4. nóvember 2019 07:30 Sáttir í San Antonio vísir/getty
Sex leikir fóru fram í NBA körfuboltanum og var mikið um dýrðir líkt og vanalega. Í San Antonio mættust stórveldi Vesturdeildarinnar þar sem Los Angeles Lakers var í heimsókn hjá San Antonio Spurs. Eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í deildinni hafa LeBron James og félagar í Lakers verið óstöðvandi og Spurs tókst ekki að stöðva sigurgöngu þeirra í nótt. LeBron fór mikinn með 21 stig, 11 fráköst og 13 stoðsendingar en leiknum lauk með fimm stiga sigri Lakers, 96-103. Risarnir í liði Lakers, Anthony Davis (25 stig, 11 fráköst) og Dwight Howard (14 stig, 13 fráköst) fóru sömuleiðis mikinn en Dejounte Mourray var stigahæstur heimamanna með 18 stig. Luka Doncic hefur einnig byrjað tímabilið af krafti og hann átti frábæran leik (29 stig, 14 fráköst og 15 stoðsendingar) þegar Dallas Mavericks lagði Cleveland Cavaliers örugglega, 111-131. Ótrúlegur fyrsti leikhluti lagði grunninn að 29 stiga sigri Miami Heat á Houston Rockets á heimavelli, 100-129. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 46-14 fyrir heimamönnum. Þá vann Los Angeles Clippers sinn fimmta sigur í deildinni þegar liðið fékk Utah Jazz í heimsókn. Kawhi Leonard öflugur með 30 stig.Úrslit næturinnarNew York Knicks 92-113 Sacramento Kings Indiana Pacers 108-95 Chicago Bulls Miami Heat 129-100 Houston Rockets San Antonio Spurs 96-103 Los Angeles Lakers Cleveland Cavaliers 111-131 Dallas Mavericks Los Angeles Clippers 105-94 Utah Jazz
NBA Mest lesið Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Körfubolti Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Sjá meira