Pabbinn kvartar yfir því að sonurinn hafi ekki fengið bann Anton Ingi Leifsson skrifar 23. október 2019 19:22 Kristján Örn í leik með ÍBV. vísir/bára
Dómaranefnd HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu í dag eftir að ljóst var að Eyjamennirnir Kristinn Guðmundsson og Kristján Örn Kristjánsson yrðu ekki dæmdir í bann. Kristján og Kristinn létu óvægin ummæli fjalla um dómarana í leik ÍBV og Aftureldingar en aganefnd HSÍ ákvað á fundi sínum í dag að aðhafast ekkert í málinu. Dómaranefndin segja niðurstöðuna vera vonbrigði. Það hafi ekki aðhafst í málinu eins og fordæmi eru fyrir undanfarin ár. „Undirrituð harma mjög hvernig vegið var að persónum og starfi dómara í handknattleik á Íslandi, með ummælum þjálfara og leikmanns ÍBV. Dómaranefnd HSÍ telur málið grafalvarlegt þar sem vegið er að hlutleysi og æru dómaranna,“ segir í tilkynningunni. Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan en undir hana skrifar formaður dómaranefndar, Reynir Stefánsson sem og Kristján Gaukur Kristjánsson, Gísli H. Jóhannsson og Kristín Aðalsteinsdóttir sem skrifa undir sem nefndarfólk. Þegar betur er að gáð er Kristján Gaukur faðir Kristjáns Arnars, leikmanns ÍBV. Því kvartar hann undan því að sonur sinn og þjálfari hans hafi ekki fengið leikbann. Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan.Yfirlýsing dómaranefndar HSÍ: Í 18. grein reglugerðar HSÍ um agamál kemur fram að „stjórn eða framkvæmdarstjóri HSÍ sé heimilt að vísa til úrskurðar aganefndar hvers konar atvikum, svo sem bæði leikbrotum og agabrotum, sem skaðað geta ímynd handknattleiksíþróttarinnar, hvort sem viðkomandi hafi tekið þátt í leiknum eða ekki, og ekki komið fram í atvikaskýrslu dómara eða eftirlitsmanns. Um getur verið að ræða hvers kyns ósæmilega framkomu innan eða utan leiks eða á annan hátt opinberlega.“ Framkvæmdarstjóri HSÍ vísaði ummælum sem féllu af hálfu Kristins Guðmundssonar þjálfara ÍBV á Vísi og mbl.is og Kristjáns Kristjánssonar, leikmanns ÍBV við RUV.is um dómara eftir leik ÍBV og Aftureldingar í OLÍS deild karla til aganefndar þriðjudaginn 15. október sl. Á fundi 23. október tók aganefndin fyrir málið og komst að þeirri niðurstöðu að ekki skildi frekar aðhafst í þessum málum. Undirrituð harma mjög hvernig vegið var að persónum og starfi dómara í handknattleik á Íslandi, með ummælum þjálfara og leikmanns ÍBV. Dómaranefnd HSÍ telur málið grafalvarlegt þar sem vegið er að hlutleysi og æru dómaranna. Undirrituð harma mjög niðurstöðu aganefndar í málunum og telja í raun óskiljanlegt að aganefnd hafi ekki beitt refsingu líkt og fordæmi undanfarinna ára í sambærilegum málum gefa tilefni til. Það er með ólíkindum að aganefnd skuli meta það sem svo að ummæli sem þarna féllu eins og mátti skilja frá leikmanni og þjálfara ÍBV, skuli ekki geta skaðað ímynd handknattleiksíþróttarinnar, eins og talað er um í fyrrnefndri 18. grein reglugerðar um agamál. Dómaranefnd HSÍ á ekki annars kostar völ en að fordæma þessa niðurstöður aganefndar. Starfsumhverfi dómara hlýtur þó að vera stórt spurningamerki eftir þennan úrskurð aganefndar. Endurnýjun deildardómara undanfarin ár hefur verið með minnsta móti og þó svo að eitthvað hafi bæst í hópinn í sumar er ljóst að þetta er ekki þessum starfshópi til góða. Undirrituð hafa áhyggjur af framtíð dómara í handknattleik þegar svona er í pottinn búið, varla er það félögunum eða handboltanum á Íslandi til framdráttar að þjálfarar eða leikmenn mæti í viðtöl eftir leik og láti allt flakka um dómara leiksins vitandi það að viðurlögin eru engin. Reykjavík 23.10.19 Virðingarfyllst, Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar Kristján Gaukur Kristjánsson, nefndarmaður Gísli H. Jóhannsson, nefndarmaður Kristín Aðalsteinsdóttir, nefndarmaður
Olís-deild karla Tengdar fréttir Seinni bylgjan: „Þetta er bara ömurleg framkoma“ Eyjamenn voru ekki sáttir með dómgæsluna á þriðjudag. 17. október 2019 09:00 Kristinn Guðmundsson: Ég er búinn að segja við dómaranefnd að þetta sé slakasta parið Kristinn Guðmundsson, þjálfari ÍBV, var vonum ósáttur með eins marks tap sinna manna gegn Aftureldingu í Olís deild karla í kvöld. Leiknum lauk með 24-23 sigri Aftureldingar en ÍBV var fjórum mörkum yfir í hálfleik. Kristinn lét dómara leiksins fá það óþvegið í viðtali við Vísi að leik loknum. 15. október 2019 20:44 Óskiljanleg ummæli og engin bönn Eyjamennirnir Kristinn Guðmundsson og Kristján Örn Kristjánsson voru hvorugir dæmdir í bann vegna ummæla sinna eftir leik ÍBV og Aftureldingar. 23. október 2019 13:33 Ummæli Kristins og Kristjáns á borð agafnendar Íþróttadeild hefur fengið staðfest að ummælum Kristins Guðmundssonar og Kristjáns Kristjánssonar hefur verið vísað til aganefndar HSÍ af framkvæmdastjóra sambandsins. 17. október 2019 12:27 Mest lesið Liðsfélagi Sveindísar opnar sig: Skammast mín og er skíthrædd Fótbolti Stórkostlegur sigur strákanna á Ítalíu Körfubolti Sterkasta kona heims svipt titlinum þegar í ljós kom að hún fæddist karlkyns Sport Liverpool-krísan stækkar og stækkar eftir stórtap á Anfield Fótbolti „Mér finnst þetta vera hræðilegt“ Handbolti Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Íslenski boltinn Verndar Viktor eftir slæma reynslu með Orra: „Það var erfitt“ Fótbolti Viktor sló Meistaradeildarmet Lamine Yamal Fótbolti Margt jákvætt en þýska stálið refsaði Handbolti Blikar fyrstir til að ná stigi á móti Loga og félögum Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta lítur verr út en þetta var“ Orri var flottur í Íslendingaslagnum Gott kvöld fyrir Norðurlandaþjóðirnar á HM í handbolta Umfjöllun: Afturelding-Haukar 31-22 | Mosfellingar léku sér að toppliðinu KA-menn búnir að byggja vígi í KA-heimilinu Valsmenn með fimmta sigurleikinn í röð Haukur kom að tíu mörkum og Ljónin með fyrsta sigurinn síðan í október Viktor gat ekki spilað í Meistaradeildinni í kvöld „Hún lamdi aðeins á mér“ Elísa er klár í slaginn gegn Serbíu: „Ég er alveg þyrst í að komast út á gólf“ „Mér finnst þetta vera hræðilegt“ Skýrsla frá Stuttgart: Betra en búist var við Magdeburg áfram með fullt hús í Meistaradeildinni Serbarnir unnu með tólf mörkum „Ágætt að byrja á þessu og blóðga liðið“ Sturluð upplifun og skjálftinn farinn „Náðum að stríða þeim og það var markmiðið“ Nýtti pirringin á réttan hátt Margt jákvætt en þýska stálið refsaði Alfreð Gísla keyrði í rúma sex tíma til að sjá íslensku stelpurnar spila Helmingur hópsins að spila á HM í fyrsta sinn Elísa ekki með og Andrea utan hóps „Þeirra helsti veikleiki“ „Það helsta sem ég sakna við Þýskaland“ Fiskur og rauðvín í Barcelona í skugga sögusagna: „Best að segja sem minnst“ Ætla að senda skýr skilaboð gegn Íslandi og gætu fengið vænan bónus „Mun reyna meira á okkur en við erum vanar“ Skjótur bati Janusar: „Tel mig heppinn að ekki hafi farið verr“ „Ég vil ekki gera mér of miklar væntingar“ Fjórtán marka tap Fram í Portúgal Sjá meira
Seinni bylgjan: „Þetta er bara ömurleg framkoma“ Eyjamenn voru ekki sáttir með dómgæsluna á þriðjudag. 17. október 2019 09:00
Kristinn Guðmundsson: Ég er búinn að segja við dómaranefnd að þetta sé slakasta parið Kristinn Guðmundsson, þjálfari ÍBV, var vonum ósáttur með eins marks tap sinna manna gegn Aftureldingu í Olís deild karla í kvöld. Leiknum lauk með 24-23 sigri Aftureldingar en ÍBV var fjórum mörkum yfir í hálfleik. Kristinn lét dómara leiksins fá það óþvegið í viðtali við Vísi að leik loknum. 15. október 2019 20:44
Óskiljanleg ummæli og engin bönn Eyjamennirnir Kristinn Guðmundsson og Kristján Örn Kristjánsson voru hvorugir dæmdir í bann vegna ummæla sinna eftir leik ÍBV og Aftureldingar. 23. október 2019 13:33
Ummæli Kristins og Kristjáns á borð agafnendar Íþróttadeild hefur fengið staðfest að ummælum Kristins Guðmundssonar og Kristjáns Kristjánssonar hefur verið vísað til aganefndar HSÍ af framkvæmdastjóra sambandsins. 17. október 2019 12:27