Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun litínjónarafhlaðna Atli Ísleifsson skrifar 9. október 2019 09:59 John B. Goodenough, M. Stanley Whittingham og Akira Yoshino. Nóbelsverðlaunin
John B. Goodenough, M. Stanley Whittingham og Akira Yoshino hljóta Nóbelsverðlaun í efnafræði í ár fyrir þróunina á litínjónarafhlöðum. Sænska vísindaakademían greindi frá þessu í morgun. Rafhlöðurnar geta geymt mikið rafmagn, sem framleitt er úr sólar- og vindorku, og geta þá átt þátt í að stuðla að samfélagi laust við jarðefnaeldsneyti. Kosturinn við litínjónarafhlöður er að þær byggja ekki á efnaskiptum sem brjóta niður rafeindir, heldur litínjónum sem flæða fram og aftur milli plús- og mínusskauts. Upphaf slíkra rafhlaðna má rekja aftur til áttunda áratugarins þar sem Stanley Whittingham vann að því að þróa leiðir til að stuðla að jarðefnalausu samfélagi. Bandaríkjamaðurinn John B. Goodenough starfaði við Texas-háskóla, er 97 ára gamall, og er elstur allra til að hljóta Nóbelsverðlaun. Stanley Whittingham er ensk-bandarískur efnafræðingur sem starfar við Háskóla New York-ríkis. Akira Yoshino er japanskur efnafræðingur sem starfar við Meijo-háskóla.
Bandaríkin Japan Nóbelsverðlaun Tækni Vísindi Tengdar fréttir Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á frumum og súrefni Þrír vísindamenn deila verðlaunum í læknisfræði. Þeir rannsökuðu hvernig frumur aðlagast breytileika í framboði á súrefni. 7. október 2019 09:58 Fengu Nóbelinn fyrir heimsfræði og fjarreikistjörnufund Tilkynnt var um hverjir fá Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í Stokkhólmi í morgun. 8. október 2019 10:15 Mest lesið Hálka á höfuðborgarsvæðinu og Hellisheiði Innlent Ástæða fyrir því að genaumræðan hafi ekki náð mikilli útbreiðslu Innlent Íslensk stúlka í klóm 764 hvött til sjálfsskaða og ofbeldis Innlent Lögreglumenn svekktir að sjá hversu margir hundsuðu fyrirmæli í gær Innlent Veðurvaktin: Allt á kafi í snjó á metdegi Veður Karlmaður lést í Bláa lóninu Innlent Snjómokstur í fullum gangi en verkið er viðamikið Innlent Rak nefndina sem átti að taka fyrir viðhafnarsalinn og sigurbogann Erlent Hlýni á föstudag og snjórinn geti horfið í næstu viku Veður Ráðgjafinn ráðinn tveimur dögum eftir að grennslast var fyrir um málið Innlent Fleiri fréttir Rak nefndina sem átti að taka fyrir viðhafnarsalinn og sigurbogann Fjórtán drepnir í árásum á meinta fíkniefnasmyglara Þriðju kosningarnar á fjórum árum Stærsti fellibylur í sögu Jamaíka Færeyingar marka leið fyrir risastór neðansjávargöng Ísraelsher gerir árás á Gasa Andstæðingar olíuleitar Norðmanna hrósa sigri þrátt fyrir tap Skipar hernum að gera árásir á Gasa Áfrýjar sakfellingu í þagnargreiðslumálinu Sakar Evrópu um stríðsæsingu Musk í samkeppni við Wikipedia Búast við hamförum vegna Melissu Van de Velde bannað að ferðast til Ástralíu til að keppa á heimsmeistaramótinu Segja Rússa elta almenna borgara með drónum Játar að hafa myrt Shinzo Abe Undirrituðu samkomulag um fágæta málma Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Milei vann stórsigur í Argentínu Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Hundruðum gert að rýma vegna grjóthruns í Ósló Sjá meira
Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á frumum og súrefni Þrír vísindamenn deila verðlaunum í læknisfræði. Þeir rannsökuðu hvernig frumur aðlagast breytileika í framboði á súrefni. 7. október 2019 09:58
Fengu Nóbelinn fyrir heimsfræði og fjarreikistjörnufund Tilkynnt var um hverjir fá Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í Stokkhólmi í morgun. 8. október 2019 10:15