Annar með hafnaboltakylfu, hinn með hníf og báðir ákærðir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. september 2019 10:00 Mönnunum lenti saman að kvöldi sunnudagsins 7. júlí í sumar framan við Barónstíg 47 í Reykjavík. Já.is
Tveir karlmenn sem sæta ákæru héraðssaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás neituðu báðir sök við þingfestingu málsins sem er til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það sem vekur athygli er að mennirnir eru ákærðir fyrir líkamsárás hvor á annan að kvöldi sunnudagsins 7. júlí í sumar við Barónstíg í Reykjavík. Annar karlmaðurinn er ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa veist að og slegið hinn karlmanninn einu höggi í höfuðið með hafnaboltakylfu. Afleiðingarnar voru þær að viðkomandi hlaut fjögurra sentímetra skurð á mitt enni sem sauma þurfi saman með fimm sporum. Auk þess hlaut hann heilahristing. Hann gerir kröfu um þrjár milljónir króna í skaðabætur. Hinn karlmaðurinn, sá sem þurfti að sauma fimm spor í, er sömuleiðis ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa ítrekað reynt að stinga hinn karlmannin með hnífi. Manninum tókst að komast undan á hlaupum. Ákæruvaldið krefst þess að mennirnir verði báðir dæmdir til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar auk þess sem haldlögðu munirnir, hafnaboltakylfa og hnífur verði gerðir upptækir.
Dómsmál Reykjavík Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira