Breti í masókískri glæpaútgerð á Íslandi Þórarinn Þórarinsson skrifar 1. júlí 2019 07:45 Glæpasagnahöfundurinn Quentin Bates tengist Íslandi sterkum böndum og hér eiga allir hans reyfarar sér stað. Honum hefur aldrei komið til hugar að nota England sem sögusvið. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Quentin Bates skrifar glæpasögur sem gerast í íslenskum raunveruleika þar sem Gunnhildur Gísladóttir, aðstoðarvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, og hennar fólk eltist við undirheimalýð og glæpahyski í Reykjavík. „Ég þekki vel til hérna og umhverfið er athyglisvert og spennandi og mér fannst þetta bara góð hugmynd,“ segir Quentin sem sótti landið heim nýlega meðal annars í tilefni af því að bók hans Thin Ice, Á hálum ís, var að koma út á íslensku. „Mér fannst ómögulegt að nýta ekki innsýn mína og þekkingu á íslensku samfélagi,“ segir Quentin sem hefur meðal annars búið á Íslandi ásamt íslenskri eiginkonu sinni en hingað kom hann fyrst sem ungur maður. Á hálum ís er önnur bókin um Gunnhildi, eða Gunnu, sem kemur út á íslensku en riðið var á íslenskt vaðið með Blákaldri lygi, sem fékk góðar viðtökur þegar hún kom út fyrir nokkrum árum. Quentin býr með fjölskyldu sinni á Englandi þar sem hann skrifar sjávarútvegsfréttir á daginn en sinnir þýðingum á íslenskum skáldverkum og eigin glæpaskrifum á kvöldin. Aðspurður segir hann að aldrei hafi hvarflað að sér að skrifa glæpasögur sem gerist í heimalandinu. Hugmyndin um að leggja út á glæpabrautina hafi einhvern veginn alltaf tengst Íslandi. Það er ekki nóg með að Quentin skrifi um glæpi sem framdir eru á Íslandi hann þýðir einnig íslenskar glæpasögur á ensku, meðal annars bækur Ragnars Jónassonar og Lilju Sigurðardóttur.Glæpir og fiskerí „Ég þýddi líka Stormfugla Einars Kárasonar,“ segir Quentin og greinilegt er að honum hefur ekki leiðst í sjávarháska með Einari og persónum hans, enda gamall sjóhundur. „Sjórinn er mitt bakland. Ég var lengi sjómaður á togara við strendur Englands og Íslands en er nú ekki svo gamall að ég hafi verið í þorskastríðinu. Það var búið áður en ég byrjaði í þessu,“ segir Quentin sem enn gerir út ef svo má segja. „Ég er blaðamaður á daginn og skrifa eingöngu um sjávarútveg; fisk, kvóta, skipasmíði, bobbinga og allt sem viðkemur útgerð og sjósókn.“ Sjávarútvegsfréttirnar skrifar Quentin úti í skúr í garðinum heima hjá sér þaðan sem þær fara lóðbeint á netið. „Þegar ég er búinn í skúrnum á daginn fer ég að sinna þýðingunum og mínu dóti í eldhúsinu. Ég reyni að halda þessu aðskildu þannig og fer ekki með bækurnar út í skúr og helst ekki með fiskidótið inn í eldhús þótt það gangi ekki alltaf upp.“Undarlegur masókismi Quentin segist tilheyra fámennum hópi krimmahöfunda sem hafi valið sér Norðurlöndin sem sögusvið án þess að vera þaðan. „Við köllum okkur „the Nordic Pretenders“, segri hann um þessar vel meinandi boðflennur. „Þetta er auk mín meðal annars Michael Ridpath, sem skrifar um Ísland, Christoffer Petersen, sem skrifar um Grænland, Þjóðverjinn Jan Costin Wagner sem skrifar um Finnland, og nokkrir til viðbótar. „Það þykir ekkert sérkennilegt að breskir höfundar fari suður á bóginn eftir sögusviði, til Frakklands og Ítalíu. Til dæmis. Kannski vegna þess að maturinn og veðrið er alltaf gott? En það þykir svolítið skrítið að fara norður eftir. Kannski er það ákveðinn masókismi að reyna að nota Ísland, Noreg, Finnland og Grænland.“
Birtist í Fréttablaðinu Bókmenntir Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Fleiri fréttir „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Sjá meira