Fjarlægðu tölvubúnað af heimili dæmds barnaníðings á Akureyri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júlí 2019 10:30 Lögreglan á Akureyri nýtur aðstoðar kollega að sunnan við rannsókn málsins. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Akureyri réðst í húsleit á Akureyri þann 13. júní síðastliðinn á heimili karlmanns á fimmtugsaldri sem hlaut árið 2013 átján mánaða dóm fyrir að brjóta á tólf ára stúlku. Ráðist var í húsleitina að undangengnum úrskurði frá Héraðsdómi Norðurlands eystra en grunur lék á að karlmaðurinn hefði brotið á 210. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um dreifingu á klámi. Karlmaðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hann var yfirheyrður um hið meinta sakarefni. Hann neitar sök og var látinn laus að skýrslutöku lokinni. Rannsókn lögreglu mun vera á frumstigi. Lögreglan á Norðurlandi eystra naut aðstoðar tölvurannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að tryggja möguleg rafræn gögn. Hald var lagt á tölvubúnað á heimili mannsins og stendur rannsókn á tölvubúnaðnum og rafrænum gögnum yfir. Karlmaðurinn var árið 2013 dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að brjóta á tólf ára gamalli stúlku sem var dóttir vinafólks hans. Hann sagðist ekki hafa verið meðvitaður um aldur stúlkunnar, talið hana sextán til sautján ára gamla. Stúlkan hafði glímt við verulega erfiðleika í æsku og meðal annars lent í grimmu einelti.
Akureyri Lögreglumál Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira