Leonard og George sameinast hjá Clippers Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2019 09:16 Verðandi samherjarnir Kawhi Leonard og Paul George. vísir/getty
Kawhi Leonard, besti leikmaður úrslita NBA-deildarinnar á síðasta tímabili, og Paul George eru á förum til Los Angeles Clippers. Adrian Wojnarowski hjá ESPN greinir frá. Beðið hafði verið eftir að Leonard tæki ákvörðun um framtíð sína. Hann lék með Toronto Raptors á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sinn fyrsta meistaratitil. Leonard var með lausan samning eftir tímabilið og ræddi við Toronto og Los Angeles-liðin, Lakers og Clippers. Síðastnefnda liðið varð á endanum fyrir valinu. Ein af forsendunum fyrir því var að Clippers landaði öðrum feitum bita á leikmannamarkaðinum, Paul George frá Oklahoma City Thunder. Í staðinn fyrir George fær Oklahoma gommu af valréttum í nýliðavalinu næstu ár auk leikstjórnandans Shai Gilgeous-Alexander og framherjans Danilo Gallinari. Eins og áður sagði varð Leonard meistari með Toronto í vetur og valinn besti leikmaður úrslitanna þar sem Toronto vann Golden State Warriors, 4-2. Leonard gerir fjögurra ára samning við Clippers sem færir honum 142 milljónir Bandaríkjadala í laun. George átti sitt besta tímabil á ferlinum í vetur og var þriðji í valinu á verðmætasta leikmanni tímabilsins. Hann skoraði 28,0 stig, tók 8,2 fráköst og gaf 4,1 stoðsendingu að meðaltali í leik og var valinn í fyrsta úrvalslið tímabilsins.
NBA Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira