Ævintýrin í náttúrunni heilla 9. júlí 2019 10:00 Dýrleif á toppi Hvannadalshnjúks í 2.110 metra hækkun.
Hjúkrunarfræðingurinn Dýrleif Sigurjónsdóttir starfar á vökudeild Landspítalans. Hún stundar hreyfingu og útiveru af krafti og stefnir alltaf lengra og hærra. Dýrleif stundar í dag mikla hreyfingu en hún er að æfa Boot Camp og er frekar nýlega komin með æði fyrir utanvegahlaupum, fjallahlaupum og þríþraut. „Ég myndi segja að aðalhreyfingin mín í dag séu hlaup. Ég fór á byrjendanámskeið í þríþraut í maí og gjörsamlega elskaði það. Þar er mikil áhersla á hlaup, sund og hjól og maður kemst í mjög skemmtilegt form á stuttum tíma. Eins og staðan er núna er ég mest í því að hlaupa, synda og hjóla,“ segir Dýrleif.Krefjandi en skemmtilegt Hún tók þátt í sinni fyrstu sprettþraut í byrjun maí. „Þrautin samanstendur af 400 metra sundi, 10 kílómetra hjóli og 3 kílómetra hlaupi. Ég skal alveg viðurkenna að þetta var meira krefjandi en margt annað sem ég hef keppt í en á sama tíma gríðarlega skemmtilegt. Það er mjög sérkennilegt að fara beint úr sundi í hjól og svo beint úr hjóli í hlaup. Fæturnir verða þreyttir en það er svo skemmtileg fjölbreytni í þessu sporti að maður fær ekki nóg,“ útskýrir Dýrleif. Dýrleif hefur alla tíð verið mikið í útivist en hún kunni ekki alltaf að meta það hvað útivera er góð fyrir mann. „Pabbi labbaði með mig frá unga aldri í bakpoka á bakinu upp á fjöll. Ég ólst upp í Noregi og þar voru foreldrar mínir mikið að draga mig ásamt systkinum mínum í fjallgöngur sem ég kunni lítið að meta á þeim tíma. Áhuginn kviknaði þegar ég varð eldri og þroskinn orðinn meiri.“ Í janúar á þessu ári skráði Dýrleif sig í fjallgönguhóp á vegum Tindar Travel með það markmið að leiðarljósi að klífa Hvannadalshnjúk í maí síðastliðnum. „Vilborg Arna pólfari er ein af stofnendum hópsins og hún sagði á fyrsta fundi að við myndum öll fá fjallabakteríuna eftir hnjúkinn og það gerðist svo sannarlega hjá mér. Eftir Hvannadalshnjúkinn fór ég að klífa eitt til þrjú fjöll á viku, og ég fæ ekki nóg.“ Mikilvægt fyrir líkama og sál Dýrleif hefur fundið fyrir betra andlegra jafnvægi eftir að hún fór að stunda meiri útiveru. „Talandi af eigin reynslu þar sem ég náði lítið sem ekkert að ganga á fjöll þegar ég var í háskólanum þá finn ég gríðarlega mikinn mun á andlegri heilsu minni eftir að ég fór að fá þessa svokölluðu fjallabakteríu.“ Hreyfing úti í náttúrunni getur oft verið góð núllstilling. „Ef maður er undir miklu álagi eins og ég er oft í mínu starfi þá er gott að gera eitthvað annað sem brýtur upp álagið. Ég myndi segja að hlaup, útivist og öll þjálfun hafi hjálpað mér gríðarlega mikið að takast á við vinnuálagið sem fylgir vaktavinnu,“ segir Dýrleif. „Mér finnst eiginlega lífsnauðsynlegt að stunda hreyfingu og vera í náttúrunni til að tæma hugann og næra sálina.“ Það er nóg um að vera hjá Dýrleif á næstunni og hún ætlar ekkert að slaka á. „Ég ætla að taka þátt í þríþrautarkeppni á Akranesi núna í júlí þar sem farið er um Langasand og Akrafjall. Ég ætla svo til Noregs í orlofinu mínu til að vinna og í leiðinni mun ég klífa fjöll og taka þátt í þríþraut sem heitir Tripp Trapp Triathlon og fer fram í hinum fallega Lysefjorden.“ Hún er spennt fyrir komandi tímum og markmiðin fyrir næsta ár eru skýr. „Mín helstu markmið í hreyfinu þessa stundina eru að halda áfram á sömu braut sem ég er á núna og bæta mig enn frekar í hlaupum og þríþraut.“ Hún stefnir á Laugavegshlaupið næsta sumar. „Til þess að ná því markmiði ætla ég að skrá mig í utanvegahlaupahóp í haust til þess að ná að halda mér vel við efnið.“Dýrleif tók þátt í Snæfellsjökulshlaupinu í júní síðastliðnum.
Birtist í Fréttablaðinu Fjallamennska Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira