Drake reif kjaft við Draymond Green Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. maí 2019 08:30 Drake er þekktasti stuðningsmaður Toronto Raptors. vísir/getty
Drake, rappari og stuðningsmaður Toronto Raptors, og Draymond Green, leikmaður Golden State Warriors, áttu í orðaskiptum eftir fyrsta leik úrslita NBA-deildarinnar í Toronto í nótt. Toronto vann leikinn, 118-109. Drake hefur látið mikið fyrir sér fara í úrslitakeppninni í vor. Í fjórða leik Toronto og Milwaukee Bucks í úrslitum Austurdeildarinnar greip hann m.a. um axlirnar á Nick Nurse, þjálfara Toronto. Rapparinn fékk skammir frá NBA-deildinni og var vinsamlegast beðinn um að reyna að hemja sig á hliðarlínunni. Drake gat hins vegar ekki staðist freistinguna að núa Green tapinu um nasir eftir leikinn. Green hafði lítinn húmor fyrir stælunum í Drake og þeir skiptust á nokkrum vel völdum orðum. Á blaðamannafundi eftir leik vildi Green ekki gera of mikið úr atvikinu og sagði að þeir Drake hefðu einfaldlega átt í orðaskiptum. Drake mætti á leikinn í Toronto-treyju með nafni Dells Curry og númerinu 30 á bakinu. Sonur Currys, Steph, leikur með Golden State og er númer 30 eins og pabbinn sem lék með Toronto á árunum 1999-2002. Curry skoraði 34 stig í leiknum í nótt og var stigahæstur á vellinum.
NBA Tengdar fréttir Óvænt stjarna skein skært í sigri Toronto í fyrsta leik úrslitanna Toronto Raptors er komið yfir gegn Golden State Warriors í úrslitum NBA-deildarinnar. 31. maí 2019 07:30 Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira
Óvænt stjarna skein skært í sigri Toronto í fyrsta leik úrslitanna Toronto Raptors er komið yfir gegn Golden State Warriors í úrslitum NBA-deildarinnar. 31. maí 2019 07:30