Refskákin um toppstarfið í Brussel hafin Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 28. maí 2019 20:00 Þau sem þykja líklegust til að taka við valdamesta embættinu í Brussel. Manfred Weber, Frans Timmermans, Margarethe Vestager og Michel Barnier. Vísir/samsett
Nú þegar úrslit Evrópuþingskosninga eru ljós hefst mikil samningalota milli þjóðarleiðtoga, flokksleiðtoga og Evrópuþingmanna um skipan í toppstöður Evrópusambandsins. Skipa þarf í embætti utanríkismálastjóra, bankastjóra evrópska Seðlabankans, forseta leiðtogaráðsins og 28 framkvæmdastjóra frá öllum aðildarríkjunum. Augu allra eru þó fyrst um sinn á valdamesta embættinu. Embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins en Jean-Claude Juncker hefur gegnt því embætti undanfarin fimm ár. Leiðtogaráð Evrópusambandsins kom saman til fundar í Brussel í dag til að ræða áherslur og skipan embætta næstu fimm árin. Skipan embætta innan sambandsins kann að reynast flókin þar sem hún byggir á samningaviðræðum á milli ólíkra einstaklinga og stofnana þar sem hliðsjón er tekin af niðurstöðum Evrópuþingskosninga.Infogram Til að mynda tilnefnir leiðtogaráðið forseta framkvæmdastjórnarinnar og Evrópuþingið staðfestir tilnefninguna. Til þess þarf meirihluta á þinginu. Viðræður um þessar toppstöður kunna að reynast flóknari en áður þar sem hinar hefðbundnu valdablokkir, mið-hægrimenn og jafnaðarmenn, misstu þingmeirihluta sinn í fyrsta sinn. Frjálslyndir (ALDE + En Marche) og græningjar (Greens/EFA) bættu hins vegar nokkuð við sig og eru því með pálmann í höndunum og standa vel að vígi fyrir komandi viðræður. Þó að þjóðernissinnum og popúlistum (ENF og EFDD) hafi gengið vel í kosningunum er samstaða hjá öðrum flokkahópum um að starfa ekki með þeim í meirihluta á þinginu. Þeir flokkar munu því koma til með að gæta lítilla áhrifa.Frá kappræðum efstu frambjóðenda til embættis forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.APFramboð til Evrópuþingsins tilnefna flest svokallaðan „spitzenkandidat“ eða efsta frambjóðanda. Sú manneskja er yfirleitt sú manneskja sem kemur til með að taka við æðsta embættinu innan sambandsins. Yfirleitt er það frambjóðandi stærsta flokksins sem fær að ráða tilnefningunni til embættis framkvæmdastjóra.Hverjir koma til greina? Undanfarin ár hefur evrópski Þjóðarflokkurinn (EPP) verið stærsti flokkahópurinn og stjórnað í slagtogi við flokkahóp jafnaðarmanna (S&D) sem hefur verið næst stærstur. Því hefur Þjóðarflokkurinn gjarnan farið með embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og jafnaðarmenn fengið á móti bitastætt embætti. Líkt og fram hefur komið er staðan snúnari nú en áður þar sem þessi meirihluti er ekki lengur til staðar. Því horfa sumir til annarra möguleika en að benda einfaldlega á frambjóðanda stærsta flokksins.Macron og Merkel á fundi leiðtogaráðsins í dag. leiðtogarnir virðast ósammála um leiðir til að velja næsta framkvæmdastjóra Evrópusambandsins.EPAHinn þýski Manfred Weber er frambjóðandi Þjóðarflokksins. Hann segir að þrátt fyrir að meirihlutinn hafi tapast sé hann í yfirburðastöðu til að gera tilkall til embættis framkvæmdastjóra. Ef að Hollendingurinn Frans Timmermans, frambjóðandi jafnaðarmanna, nær að semja við frjálslynda og græningja um nýjar áherslur innan sambandsins gæti hann tekið við toppstarfinu. Eftir gott gengi frjálslyndra hefur Margarethe Vestager frá Danmörku gert sig líklega til að gera sig gildandi í samningaviðræðum. Til þess þarf frjálslyndi flokkahópurinn að sýna mikil klækjabrögð í samningaviðræðum.Merkel og Macron á öndverðu meiði Það er ekkert sem neyðir leiðtogaráðið og Evrópuþingið til að virða „spitzenkandidat“ kerfið og skiptar skoðanir eru um það á meðal leiðtoga Evrópu. Emmanuel Macron, Frakklandsforseti, er sagður afhuga því að Weber taki við sem forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hann vilji leita annarra leiða sem tryggi annaðhvort frjálslyndan fulltrúa í embættið eða Frakka. Macron er sagður koma vel út heimafyrir ef Frakki tekur við toppstarfinu í Brussel. Hann átti hádegisverðarfund með Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, í dag. Það þykir til marks um að hann sé að leita fylgis jafnaðarmanna við hugmyndir sínar. Angela Merkel, Þýskalandskanslari, hefur hins vegar sagt að ef brugðið verði frá „spitzenkandidat“ kerfinu grafi það undir evrópsku lýðræði. Hún mun styðja við Weber í embættið. Það ætti ekki að reynast henni erfitt enda er hann landi hennar úr sömu flokkafjölskyldu.Koss fyrir arftakann? Nafn Michel Barnier er óvænt komið á kreik sem mögulegur eftirmaður Jean-Claude Juncker.EPAKosningaúrslit voru varla orðin ljós á sunnudag þegar nafn Michel Barnier, aðalsamningamanns Evrópusambandsins við Bretland vegna Brexit, var komið á kreik á göngum valdastofnana í Brussel. Hann var ekki frambjóðandi í kosningunum en er virtur meðal evrópskrar stjórnmálastéttar og hefur þótt standa sig vel í samningalotunni við Bretland. Macron er sagður hrifinn af hugmyndinni um Barnier við stjórnvöldin í Berlaymont byggingunni þar sem framkvæmdastjórnin situr. Barnier er frá Frakklandi en Merkel og aðrir hægrimenn gætu sætt sig við hann þar sem hann tilheyrir mið-hægri flokkafjölskyldunni. Fundur leiðtogaráðs Evrópusambandsins í dag er bara einn af fjölmörgum formlegum og óformlegum fundum sem haldnir verða í Brussel og víða um Evrópu næstu vikurnar til að ákvarða hvaða einstaklingar taki við valdamestu embættum Evrópusambandsins næstu fimm árin.
Evrópusambandið Fréttaskýringar Tengdar fréttir Katalónarnir náðu kjöri en óvissa ríkir um framhaldið Katalónskir sjálfstæðissinnar geta ef til vill ekki tekið sæti á Evrópuþinginu þótt þeir hafi náð kjöri. Einn er í gæsluvarðhaldi, ákærður fyrir uppreisn, en tveir til viðbótar eru í útlegð vegna sama máls. Ráðandi flokkar fen 28. maí 2019 06:15 Lokadagur Evrópuþingskosninganna í dag Úrslit í Evrópuþingskosningum eiga að liggja fyrir eftir klukkan 21:00 í kvöld. 26. maí 2019 11:42 Brexit-flokkurinn sigurvegari Evrópuþingskosninga í Bretlandi Hinn nýstofnaði Brexit-flokkur Nigel Farage virðist vera sigurvegari Evrópuþingskosninganna í Bretlandi en þegar tilkynntar hafa verið niðurstöður kosninga um 64 af 73 Evrópuþingssætum Bretlands hafa Brexit-menn tryggt sér 28 þingsæti með 32% greiddra atkvæða. 27. maí 2019 08:30 Popúlistar vonast eftir sigri í Evrópuþingkosningum í kvöld Þótt hægri þjóðernisflokkar séu líklegir til að bæta við sig fylgi í kosningum til Evrópuþingsins sem lýkur í kvöld, bendir allt til að fulltrúar miðjuflokka til hægri og vinstri ráði áfram ferðinni á þinginu. 26. maí 2019 19:55 Gömlu valdablokkirnar töpuðu taki á Evrópuþinginu Gömlu valdablokkirnar á Evrópuþinginu hafa tapað taki sínu á þinginu eftir kosningarnar sem fram fóru í gær, en kosið var til Evrópuþingsins í tuttugu og einu af tuttugu og átta aðildarríkjum Evrópusambandsins í gær en kosið var í hinum sjö aðildarríkjunum fyrr í vikunni. 27. maí 2019 07:53 Útlit fyrir lykilstöðu Græningja og ALDE eftir Evrópuþingskosningarnar Líklegt er að Græningjar og ALDE, samtök frjálslyndra stjórnmálaflokka í Evrópu, verði í lykilstöðu eftir að búið verði að telja að öll atkvæði í Evrópuþingskosningunum sem luku í dag, vilji stjórnmálabandalögin sem leitt hafa þingið undanfarin ár halda völdum. 26. maí 2019 23:30 Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Sjá meira
Katalónarnir náðu kjöri en óvissa ríkir um framhaldið Katalónskir sjálfstæðissinnar geta ef til vill ekki tekið sæti á Evrópuþinginu þótt þeir hafi náð kjöri. Einn er í gæsluvarðhaldi, ákærður fyrir uppreisn, en tveir til viðbótar eru í útlegð vegna sama máls. Ráðandi flokkar fen 28. maí 2019 06:15
Lokadagur Evrópuþingskosninganna í dag Úrslit í Evrópuþingskosningum eiga að liggja fyrir eftir klukkan 21:00 í kvöld. 26. maí 2019 11:42
Brexit-flokkurinn sigurvegari Evrópuþingskosninga í Bretlandi Hinn nýstofnaði Brexit-flokkur Nigel Farage virðist vera sigurvegari Evrópuþingskosninganna í Bretlandi en þegar tilkynntar hafa verið niðurstöður kosninga um 64 af 73 Evrópuþingssætum Bretlands hafa Brexit-menn tryggt sér 28 þingsæti með 32% greiddra atkvæða. 27. maí 2019 08:30
Popúlistar vonast eftir sigri í Evrópuþingkosningum í kvöld Þótt hægri þjóðernisflokkar séu líklegir til að bæta við sig fylgi í kosningum til Evrópuþingsins sem lýkur í kvöld, bendir allt til að fulltrúar miðjuflokka til hægri og vinstri ráði áfram ferðinni á þinginu. 26. maí 2019 19:55
Gömlu valdablokkirnar töpuðu taki á Evrópuþinginu Gömlu valdablokkirnar á Evrópuþinginu hafa tapað taki sínu á þinginu eftir kosningarnar sem fram fóru í gær, en kosið var til Evrópuþingsins í tuttugu og einu af tuttugu og átta aðildarríkjum Evrópusambandsins í gær en kosið var í hinum sjö aðildarríkjunum fyrr í vikunni. 27. maí 2019 07:53
Útlit fyrir lykilstöðu Græningja og ALDE eftir Evrópuþingskosningarnar Líklegt er að Græningjar og ALDE, samtök frjálslyndra stjórnmálaflokka í Evrópu, verði í lykilstöðu eftir að búið verði að telja að öll atkvæði í Evrópuþingskosningunum sem luku í dag, vilji stjórnmálabandalögin sem leitt hafa þingið undanfarin ár halda völdum. 26. maí 2019 23:30