Á jöklum með tökufólki Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. maí 2019 08:15 Sólveig er þrautþjálfuð í vetrarferðamennsku og fylgist með jöklunum. Myndir/Guillaume Kollibay „
Það var verið að taka upp einn þátt af fjórum sem fjalla um kvenkynsleiðtoga í náttúruvísindum hjá National Geographic og þann eina sem tekinn verður hér á landi. Þeir munu allir fjalla um vatn í einhverju formi,“ segir Sólveig Sveinbjörnsdóttir sem í liðinni viku þræddi ýmsa skriðjökla Austur-Skaftafellssýslu með kvikmyndaliði og vísindafólki. Hún og maður hennar, hinn franski Guillaume, hafa nýlega stofnað fyrirtækið Localicelander sem sérhæfir sig í jöklaferðum.Hér er komin upp á krosssprunginn BreiðamerkurjökulKvenkynsleiðtoginn sem þátturinn fjallar um er dr. M. Jackson, land- og jöklafræðingur, sem að sögn Sólveigar hefur verið mikið á Suðausturlandi við rannsóknir og meðal annars skoðað samband fólks og jökla. Hún gaf út bók á þessu ári sem nefnist The Secret Lives of glaciers, og er komin í íslenskar bókabúðir. „Við Guillaume vorum ekki bara leiðsögumenn heldur líka hluti af þættinum, því dr. M. hefur fylgst með okkur. En það er mikið að gerast í kringum okkur og breytingarnar eru örar. Dæmi um það eru við Svínafellsjökul sem nú er bannað að ferðast um vegna hættu á berghlaupi, því jökullinn veitir ekki sama stuðning við fjallið og áður,“ segir Sólveig. Þættirnir eru framleiddir af kanadíska fyrirtækinu Shertas Cinema. Það vinnur þá í samstarfi við National Geographic og Google. Sólveig segir nýja sýndarveruleikatækni hafa verið notaða við tökurnar. „Það var allt tekið upp í 360 gráðum, þannig að áhorfandinn fer í ferðalag um sjóndeildarhringinn með því að setja á sig sérstök gleraugu. Myndavélarnar eru viðkvæmari en gengur og gerist og þola ekki rigningu en við vorum ótrúlega heppin með veður. Við fórum víða um jöklana og sigldum um Fjallsárlón, vinnudagarnir voru langir, tólf til fimmtán tímar á sólarhring. Við vorum alltaf að segja tökumönnunum að það væri nóg eftir af deginum þegar þeir voru að líta á klukkuna!“Myndatökulið að störfum á Skálafellsjökli.Ekki kveðst Sólveig vita hvenær þátturinn verði á dagskrá. „Ég hef ekki fengið nákvæma tímasetningu en held að það verði einhvern tíma í haust. Hinir þrír verða teknir upp annars staðar í heiminum. Þar eru ýmis umfjöllunarefni. Ég held að ein vísindakonan sérhæfi sig í kóralrifum.“ Sólveig og Guillaume hafa verið saman í á fimmta ár. „Við byrjuðum með að verja vetrunum úti og skíða og ferðast um, bjuggum í húsbíl einn vetur, svo komum við heim á sumrin og unnum við leiðsögn. Nú höfum við okkar helstu atvinnu yfir vetrartímann hér. Við höfum aðallega sérhæft okkur í íshellaferðum fyrir ljósmyndara. Einnig getur fólk keypt kort á heimasíðunni localicelander.is með upplýsingum og hollráðum fyrir ferðamenn. Við erum að reyna að gera ferðir um Ísland öruggari fyrir fólk sem ferðast á eigin vegum. Það getur líka haft samband við okkur meðan á ferðalaginu stendur. Við erum mjög virk á Instagram undir merkinu localicelander.
Birtist í Fréttablaðinu Hornafjörður Loftslagsmál Menning Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira