Mislingafaraldur í Madagaskar hefur kostað yfir 1.200 lífið Andri Eysteinsson skrifar 14. apríl 2019 10:23 WHO hefur lagt kapp á bólusetningar til að bregðast við faraldrinum. Vísir/EPA
Yfir 1.200 manns eru látnir í stærsta mislingafaraldri sem afríska eyríkið Madagaskar hefur fengið að kynnast. Meira en 115.000 manns eru taldir hafa smitast. AP greinir frá.Talið er að eingöngu 58 prósent íbúa eyjunnar hafi verið bólusettir gegn sjúkdómnum, lágt hlutfall bólusetninga mun vera ein af ástæðum þess hve hratt sjúkdómurinn dreifir sér í landinu. Mikil fátækt ríkir í stórum hluta Madagaskar og eiga foreldrar því jafnan erfitt að koma sér til heilsugæslustöðva til þess að fá börn sín bólusett. „Umfang faraldursins er því miður að verða meira og meira,“ sagði farsóttafræðingurinn Dr. Dossou Vincent Sodjinou sem staddur er í Madagaskar fyrir hönd alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Sodjinou sagði þó að útbreiðsla mislinganna væri hægari en í síðasta mánuði. Hann sagði einnig að sökum þess hve vannærður stór hluti barna eyjarinnar væri, séu þau í mun meiri hættu en ella. Samkvæmt tölfræði Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO hafa að mestu börn, undir fimmtán ára aldri, látist sökum mislinga síðan að faraldurinn hófst í Madagaskar í september síðastliðnum.
Bólusetningar Madagaskar Tengdar fréttir Mislingafaraldur á Madagaskar talinn hafa kostað yfir 900 manns lífið Mislingafaraldur sem hófst í september síðastliðnum er talinn hafa kostað yfir 900 manns lífið á Madagaskar. 21. febrúar 2019 20:49 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Mislingafaraldur á Madagaskar talinn hafa kostað yfir 900 manns lífið Mislingafaraldur sem hófst í september síðastliðnum er talinn hafa kostað yfir 900 manns lífið á Madagaskar. 21. febrúar 2019 20:49