Þriðji meðlimurinn kynntur í Goðsagnarhöll KA-manna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2019 16:30 Myndirnar af Guðjón Val, Patreki og Valdimar í KA-húsinu. Skjámynd/KA-TV
Meðlimir í Goðsagnarhöll KA-manna eru orðnir þrír eftir að Valdimar Grímsson bættist í hópinn fyrir leik KA og Selfoss í Olís deild karla í gær. KA-menn kynna ný nýjan Goðsagnarhallarmeðlim í hverjum heimaleik en áður höfðu þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Patrekur Jóhannsson fengið þennan heiður. Allir meðlimir Goðsagnarhallar KA fá risastóra mynd af sér hengda upp í KA-húsinu. Allir komu þeir Guðjón Valur, Patrekur og Valdimar norður á tíunda áratugnum en þeir náðu þó ekki að vinna Íslandsmeistaratitilinn með félaginu. KA vann 1997 titilinn eftir að Valdimar og Patrekur fóru frá liðinu og áður en Guðjón Valur kom. KA vann síðan 2002 titilinn eftir að Guðjón Valur var farinn út í atvinnumennsku. Valdimar og Patrekur hjálpuðu hins vegar KA að vinna bikarmeistaratitilinn árið 1995. Patrekur varð líka bikarmeistari með KA 1996. Valdimar Grímsson kom fyrstur fyrir tímabilið 1993-94 og lék í tvö tímabil. Fyrra tímabilið var hann markakóngur deildarinnar. Valdimar fór aftur suður eftir 1994-95 tímabilið. Patrekur Jóhannesson kom árinu á eftir Valdimar og spilaði sitt fyrsta tímabil fyrir norðan 1994 til 1995. Patrekur spilaði í tvö tímabil fyrir norðan og KA varð bikarmeistari bæði árin. Patrekur varð markóngur deildarinnar og kosinn besti leikmaðurinn 1994-95 tímabilið. Patrekur fór út í atvinnumennsku eftir 1995-96 tímabilið. Guðjón Valur Sigurðsson er sá eini af þeim þremur sem er enn að spila. Guðjón Valur kom til KA frá Gróttu fyrir 1998/99 tímabilið og lék með liðinu í þrjú tímabil. Hann var kosinn besti leikmaður deildarinnar á seinni tveimur tímabilum sínum með Akureyrarliðinu en náði ekki að vinna Íslands- eða bikarmeistaratitil fyrir norðan. KA varð aftur á móti deildarmeistari á síðasta tímabili Guðjóns Vals. KA á eftir tvo heimaleiki í Olís-deildinni og þeim gæti fjölgað takist liðinu að vinna sér sæti í úrslitakeppninni. Það komast því kannski fleiri inn í Goðsagnarhöll KA-manna í vor.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira