Valur burstaði Hauka Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. mars 2019 21:27 Hallveig Jónsdóttir og stöllur hennar eru heitasta lið landsins um þessar mundir vísir/bára
Valur valtaði yfir Hauka í Domino's deild kvenna í körfubolta í kvöld. Haukar fóru heilan leikhluta án þess að setja stig í leiknum. Valskonur eru í harðri baráttu á toppi Domino's deildarinnar en þær hafa verið algjörlega óstöðvandi síðustu vikur, ekki tapað síðustu 12 deildarleikjum fyrir leikinn á Hlíðarenda í kvöld. Haukar hafa hins vegar að litlu að keppa, þær eru öruggar frá falli og ljóst að þær fara ekki í úrslitakeppnina. Það tók heimakonur þrjár og hálfa mínútu að setja fyrstu stigin sín en þá fóru þær á skrið og breyttu stöðunni úr 0-7 í 8-7. Haukar komust ekki aftur yfir í leiknum. Í hálfleik var staðan 51-31 fyrir Val og ljóst hvoru megin sigurinn myndi falla. Hver hálfleiksræðan var inni í Haukaklefanum frá Ólöfu Helgu Pálsdóttur er óvitað, en hún hefur líklega ekki óskað eftir því sem hennar lið bauð upp á í þriðja leikhluta. Haukar skoruðu ekki stig í leikhlutanum. Af 16 skotum sem Haukaliðið tók í leikhlutanum rataði ekki eitt ofan í körfuna. Gestirnir fundu körfuna aftur í fjórða leikhluta en það var allt of seint. Leiknum lauk með 85-55 sigri Vals sem heldur því toppsæti deildarinnar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sagði konu sinni og börnum að lesa ekki kommentin Fótbolti Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Handbolti Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Handbolti Ferðaðist nærri 9000 km og borgaði fúlgur fjár fyrir ógildan miða Enski boltinn Wirtz alveg kominn með nóg af einni ráðleggingu Enski boltinn Baðst afsökunar eftir algjöra „heimsku“ Enski boltinn Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Enski boltinn Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Körfubolti Bandarísku kylfingarnir gefa Ryder-launin eftir gagnrýni Golf Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Handbolti Fleiri fréttir Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Sjá meira