Handtóku grunaðan njósnara á veitingastað í Stokkhólmi Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. febrúar 2019 23:52 Skjáskot af vef sænska dagblaðsins Dagens Nyheter. Á myndinni má sjá manninn leiddan út af veitingastaðnum. Skjáskot/Dagens Nyheter
Lögregla í Svíþjóð handtók karlmann á þriðjudagskvöld sem grunaður er um að hafa stundað njósnir í landinu að tilskipan Rússa. Í tilkynningu frá sænsku leyniþjónustunni segir að maðurinn starfi hjá sænsku hátæknifyrirtæki og hafi unnið þar með upplýsingar sem vitað er til þess að erlend ríki sækist eftir. Þá leiki grunur á um að rússneskur njósnari, sem starfaði í Svíþjóð, hafi fengið manninn til liðs við sig. Sænska leyniþjónustan handtók manninn á veitingastað í Stokkhólmi á þriðjudagskvöld og naut við það aðstoðar sænsku lögreglunnar. Sænskir fjölmiðlar hafa birt myndbönd af því þegar lögregla leiddi manninn út af veitingastaðnum en hann hefur ekki enn verið nafngreindur. Í tilkynningu kemur fram að leyniþjónustan fari nú með rannsókn málsins en talið er að brot hins meinta njósnara nái aftur til ársins 2017. Þá er haft eftir Daniel Senling, yfirmanni hjá sænsku leyniþjónustunni, að síðustu ár hafi aldrei steðjað jafnmikil ógn að öryggi Svíþjóðar og nú.
Svíþjóð Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira