Viðurkenning á góðu starfi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. febrúar 2019 07:30 Meistaraflokkur Stjörnunnar fagnar bikarmeistaratitlinum. vísir/bára
Stjarnan úr Garðabæ var aðsópsmest í Geysisbikarvikunni í körfubolta. Félagið átti fimm lið í úrslitum og fjögur þeirra urðu bikarmeistarar. Tíundi flokkur Stjörnunnar reið á vaðið þegar þeir urðu bikarmeistarar á föstudaginn eftir sigur á Fjölni, 63-52, í úrslitaleik. Á laugardaginn varð meistaraflokkur karla bikarmeistari í fjórða sinn eftir sigur á Njarðvík, 84-68. Stjarnan tapaði hins vegar fyrir Val, 74-90, í sínum fyrsta úrslitaleik í meistaraflokki kvenna. Á sunnudaginn urðu svo 9. flokkur drengja og drengjaflokkur Stjörnunnar bikarmeistarar. Stjarnan bar sigurorð af Haukum, 72-54, í úrslitaleik 9. flokks og í úrslitaleiknum í drengjaflokki hafði Stjarnan betur gegn Fjölni, 77-87. „Ég get alveg tekið undir að þetta sé viðurkenning á því starfi sem hefur verið unnið hjá Stjörnunni síðustu ár,“ sagði Snorri Örn Arnaldsson, þjálfari 9. flokks drengja hjá Stjörnunni, í samtali við Fréttablaðið um bikarhelgina. Þótt yngri flokka starfið hjá Stjörnunni sé í blóma núna hefur sú ekki alltaf verið raunin. Ekki er langt síðan körfuknattleiksdeildin lagði nánast upp laupana. „Deildin var formlega stofnuð 1993. Meistaraflokkur karla komst upp í efstu deild tímabilið 2001-02 en tapaði þá öllum leikjunum sínum. Þá var ekki mikið yngri flokka starf í gangi og deildin lagðist næstum því af. En nokkrir eldhugar héldu þessu gangandi. Það þurfti mikið átak til að halda úti meistaraflokki og þeim fáu yngri flokkum sem voru þá,“ sagði Snorri sem var ráðinn yfirþjálfari hjá Stjörnunni 2009. Þá voru iðkendur í körfuknattleiksdeildinni fáir en þeim hefur fjölgað hratt á síðustu árum.Fjölgað um 300 „Á þeim tíma voru að mig minnir 80 iðkendur í körfuknattleiksdeildinni, að meistaraflokkunum meðtöldum. Mitt hlutverk var að stýra uppganginum og það má segja að ég hafi komið inn á réttum tíma því þá var búið að leggja grunninn. Fimleikahúsið í Ásgarði var tekið í notkun 2010 og þá fékk körfuknattleiksdeildin salinn í Ásgarði fyrir sig. Við lögðum mikla áherslu á að fá áhugasama og góða þjálfara og að það yrði góður fjöldi iðkenda í yngstu flokkunum,“ sagði Snorri. Á þessum tíma var meistaraflokkur karla farinn að gera sig gildandi og varð bikarmeistari í fyrsta sinn 2009 og endurtók leikinn 2013. Stjarnan fór einnig í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn 2011 og 2013. „Það var ekki fyrr en um 2012-13 sem við þurftum ekki að leggja elstu flokkana af vegna of fárra iðkenda. Það krafðist mikillar vinnu,“ sagði Snorri sem var yfirþjálfari Stjörnunnar 2009-12 og svo aftur 2013-15. Að hans sögn fór iðkendafjöldinn í yngri flokkum Stjörnunnar síðasta vetur upp í 350 og um 380 að meistaraflokkunum meðtöldum. „Strákamegin er starfið hjá Stjörnunni það fjölmennasta en við erum enn að berjast við að ná inn nógu mörgum stelpum. Sagan er ekki með okkur kvennamegin en það að hafa átt lið í bikarúrslitum vekur vonandi aukinn áhuga.“ Snorri segir að hæfir þjálfarar hafi skipt miklu fyrir uppganginn í yngri flokka starfi Stjörnunnar. „Þjálfararnir hafa verið mjög duglegir að vekja áhuga. Í því samhengi má nefna Kjartan Atla Kjartansson sem var lengi með yngstu flokkana. Árni Ragnarsson hefur þjálfað þarna. Síðasta vetur var hann með 63 stráka í 2009-árganginum og þar var kominn biðlisti. Elías Orri Gíslason, Óskar Þór Þorsteinsson og Ragnar Björgvin Tómasson hafa einnig unnið gott starf en þeir eru allir uppaldir hjá félaginu. Þá ber að nefna þátt Barry Timmermanns sem tók við starfi yfirþjálfara 2015,“ sagði Snorri. Hann bindur vonir við að kvennastarfið hjá Stjörnunni muni stækka á næstu árum. „Meistaraflokkur kvenna var settur á laggirnar 2009 og sama ár var byrjað að byggja starfið í yngri flokkum kvenna. Það hafði ekki verið neitt slíkt og það tók langan tíma að byggja það upp. Fyrsta mánuðinn var ein stelpa að æfa en í lok vetrar voru 30 stelpur farnar að æfa,“ sagði Snorri sem telur að um 80 stelpur séu í yngri flokkum Stjörnunnar.Áhrif Jóns Kr. og Teits Snorri segir að ekki megi vanmeta þátt Jóns Kr. Gíslasonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara, sem átti stóran þátt í því að ýta körfuboltaskipinu í Garðabæ úr vör. Yngsti sonur hans, Dúi Þór, varð bikarmeistari með meistaraflokki og drengjaflokki um helgina. Sá elsti, Dagur Kár leikur sem atvinnumaður í Austurríki og sá næstelsti, Daði Lár, með Haukum. Þeir léku áður með meistaraflokki Stjörnunnar. „Jón Kr. hefur komið að því að byggja upp starfið í kringum sína stráka en hann er líka mikill áhugamaður um deildina og er alltaf reiðubúinn að aðstoða og miðla af sinni miklu reynslu. Til dæmis kom formaður körfuknattleiksdeildarinnar [Hilmar Júlíusson] upphaflega inn í starfið í gegnum son sinn [Tómas Þórð] sem Jón Kr. þjálfaði,“ sagði Snorri sem var aðstoðarmaður Teits Örlygssonar með meistaraflokk karla í nokkur ár. Hann segir að þótt Teitur hafi aldrei þjálfað yngri flokka hafi Teitur haft mikil áhrif á starfið hjá Stjörnunni. „Metnaður hans, keppnisskap og þekking á leiknum smitaði út frá sér,“ sagði Snorri. En hver er framtíðarsýnin hjá körfuknattleiksdeild Stjörnunnar? „Við ætlum að vera með flottasta yngri flokka starfið. Það er huglægur mælikvarði en við viljum vera með marga iðkendur og ná árangri eins og um helgina. En gæði þjálfunar yngri flokka felst í meiru en að vinna titla. Við viljum að það verði horft til okkar sem leiðandi afls í uppbyggingu á yngri flokka starfi. Okkur finnst við vera á réttri leið,“ sagði Snorri að lokum.
Birtist í Fréttablaðinu Dominos-deild karla Mest lesið Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Körfubolti Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Fótbolti Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Þorleifur snýr heim í Breiðablik Íslenski boltinn Sendu Houston enn á ný í háttinn Körfubolti Fleiri fréttir Allt undir í oddaleik: Sjaldan mætt liði á Íslandi með jafn mikil einstaklingsgæði „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Sendu Houston enn á ný í háttinn „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Diamond: Þurfum að ná í stopp allan leikinn Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 72-90 | Haukar einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum Styrmir gulltryggði sigur Belfius Mons og var stigahæstur á vellinum „Verið að kveðja góðan mann með mjög glæstan feril“ Sterk liðsheild Denver á meðan Clippers féll á prófinu „Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ „Ég kom til Íslands með eitt markmið“ Hamar jafnaði einvígið með stórsigri Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 90-105 | Stólarnir komnir í úrslit „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Houston knúði fram oddaleik Segir sína menn þurfa að vera í „meistara ásigkomulagi“ „Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 95-92 | Rosalegasta endurkoma síðari ára „Ég hef hluti að gera hér“ Brynjar Karl svarar fyrir sig: „Ég má ekki verja mig opinberlega“ Goðsögnin Popovich hættur í þjálfun Þurfti bara eitt orð um mestu áskorunina við að mæta Njarðvík Birti myndir af fólki, kalli það illum nöfnum og saki um einelti á meðan Faðir Haliburton fær ekki að mæta á leiki hjá Pacers Brunson sendi Pistons í sumarfrí en Clippers tryggði sér oddaleik Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 86-79 | Haukar taka forystu í úrslitaeinvíginu LeBron um framtíðina: „Hef ekki svar“ Úlfarnir sendu Luka, LeBron og félaga í sumarfrí Martin að ná í úrslitakeppnina eftir allt saman? Annað skiptið í röð sem leikmaður San Antonio er valinn nýliði ársins Sjá meira