Lést eftir að rafretta sprakk framan í hann Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. febrúar 2019 08:20 William Brown.
Karlmaður á þrítugsaldri frá Texasríki í Bandaríkjunum lést í lok janúar eftir að rafretta sem hann var að reykja sprakk framan í hann. Maðurinn, William Brown, var staddur á bílastæði fyrir utan verslun sem selur rafsígarettur og svokölluð „veip“ í bænum Fort Worth þegar slysið varð þann 27. janúar síðastliðinn. Brown var fluttur á sjúkrahús en lést tveimur dögum síðar af sárum sínum. Samkvæmt frétt bandarísku fréttastofunnar CNN festist brot úr rafrettunni í hálsslagæð hans og skar hana í sundur. Þá er haft eftir verslunarstjóra veipsjoppunnar að Brown hafi komið inn í búðina skömmu áður en slysið varð og beðið þar um aðstoð. Hann hafi ekki keypt neitt og staldrað stutt við í búðinni.Í fyrra lést bandarískur karlmaður eftir að rafretta sprakk framan í hann. Brot úr sprengingunni festist í höfuðkúpu hans og þá hlaut hann alvarleg brunasár. Talið var að maðurinn hefði verið fyrsti reykjingamaðurinn vestanhafs sem lætur lífið vegna rafrettusprenginar.
Bandaríkin Rafrettur Mest lesið Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Innlent Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent Óttast að námsbraut verði undir verði af frumvarpinu Innlent Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Erlent Fleiri fréttir Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre „Samþykki“ tekið upp í frönskum lögum í kjölfar Pelicot málsins Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Fjórir látnir á Jamaíku og tuttugu í Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Sjá meira