Kreppir að í rekstri hvalaskoðunarfélaga Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 13. desember 2018 07:30 Ferðamenn fylgjast agndofa með hnúfubak á Skjálfanda. Mynd/Gentle Giants.
Róðurinn í hvalaskoðun þyngdist verulega á milli áranna 2016 og 2017. Kostnaðarhækkanir og hátt gengi krónunnar hafa sett mark sitt á afkomuna. Samantekt á helstu rekstrartölum hjá átta hvalaskoðunarfyrirtækjum sýnir örar breytingar á rekstrarumhverfinu. Árið 2016 var samanlögð afkoma jákvæð um 338 milljónir króna en í fyrra var hún neikvæð um 222 milljónir. Heildartekjur námu rétt rúmum þremur milljörðum króna og stóðu í stað á milli ára. Rekstrargjöld jukust hins vegar um 16 prósent og þar af jukust launagjöld um 26 prósent. Þrjú stærstu hvalaskoðunarfyrirtækin standa undir langsamlega stærstum hluta tekna í greininni, eða um 2,1 milljarði af þremur milljörðum. Aðeins eitt þeirra, Elding, skilaði hagnaði og nam hann aðeins einu prósenti af tekjum. „Það var samdráttur þrátt fyrir að ferðamönnum fjölgaði. Við fundum mjög greinilega fyrir því að hver ferðamaður eyddi minna en áður. Bókanir fram í tímann hafa vissulega haldið áfram að streyma inn en það bætist minna við á síðustu dögunum fyrir ferðir,“ segir Rannveig Grétarsdóttir, eigandi hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar. Elding, sem er stærsta fyrirtækið í atvinnugreininni, hagnaðist um 8 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 54 milljónir á árinu 2016. Tekjur fyrirtækisins námu 855 milljónum króna og drógust saman um tvö prósent á milli ára. Yfir sama tímabil jókst kostnaður um þrjú prósent. „Það eru viðbrigði að fara úr samfelldum vexti yfir í samdráttarskeið. Hvalaskoðunarfyrirtæki eru að reyna að finna jafnvægi í rekstrinum, til dæmis hvað varðar starfsmannafjölda og fjölda ferða, og þurfa að hagræða,“ segir Rannveig. Special Tours, sem er í eigu Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, er þriðja stærsta fyrirtækið á markaðinum mælt í tekjum. Special Tours hafði hagnast um 149 milljónir króna árið 2016 en á síðasta ári var félagið rekið með tapi upp á 38 milljónir. Munaði miklu um að rekstrargjöld jukust um 21 prósent og launakostnaður um 31 prósent. Þá tapaði næststærsta félagið, Norðursigling, 122 milljónum króna en í félaginu er einnig annars konar rekstur og fjárfestingar.Veiking krónunnar kærkomin Samhliða fjölgun ferðamanna hafa ýmis hvalaskoðunarfyrirtæki sprottið upp og ríkir nú hörð samkeppni á markaðinum en Rannveig segir að samkeppnina þurfi einnig að skoða í víðara samhengi. „Við erum í samkeppni við alla afþreyingu, ekki bara önnur fyrirtæki í hvalaskoðun. Ef við tökum rútuferðir sem dæmi þá hefur hörð samkeppni á milli stærstu rútufyrirtækjanna valdið miklum verðlækkunum. Rútuferðir um gullna hringinn og hvalaskoðunarferðir kostuðu álíka mikið fyrir þremur árum en nú eru rútuferðir orðnar mun ódýrari. Það hefur að sjálfsögðu áhrif á val ferðamanna á afþreyingu enda horfa þeir í hverja krónu þegar gengið er hátt,“ segir Rannveig og bætir við að veiking krónunnar síðustu vikur og mánuði hafi verið kærkomin. Reksturinn hafi gengið vel í nóvember og það sem af er desember. „Við fundum strax aukningu í síðbúnum bókunum. Um leið og kaupmáttur ferðamanna á Íslandi eykst þá eyða þeir meiru í afþreyingu. Hins vegar er það því miður þannig að ferðamenn virðast gera ráð fyrir að allt sé mjög dýrt þegar þeir koma til landsins og undirbúa sig í samræmi við það,“ segir Rannveig. Hún segir jafnframt að undanfarið hafi samþjöppunar gætt innan greinarinnar og að líklega muni sú þróun halda áfram. Elding tekin af sölu Elding var sett í söluferli undir lok síðasta árs en Rannveig segir að fallið hafi verið frá þeim áformum. „Við bökkuðum út úr söluferlinu í febrúar vegna þessa að við töldum að það væri ekki tímabært að taka þetta skref miðað við aðstæður á markaðinum. Við ætlum frekar að komast í gegnum samdráttarskeiðið og taka stöðuna þegar því er lokið.“
Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Mest lesið „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Neytendur „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Viðskipti innlent Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Viðskipti innlent „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Atvinnulíf Buffet hættir sem forstjóri við lok árs Viðskipti erlent Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Neytendur Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Viðskipti erlent Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Viðskipti erlent „Þetta er ömurleg staða“ Viðskipti innlent Syndis kaupir Ísskóga Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Syndis kaupir Ísskóga Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap „Þetta er ömurleg staða“ Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Rannsaka meint samkeppnisbrot Landsvirkjunar Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Þau vilja stýra ÁTVR Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið Um þrjátíu prósent hafa miklar áhyggjur af áhrifum tolla á Ísland Lauf Cycles lýkur tæplega 500 milljóna króna fjármögnun Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Sjá meira