Anton Sveinn stórbætti Íslandsmetið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. desember 2018 08:00 Anton Sveinn Mckee. vísir/anton
Anton Sveinn McKee stórbætti Íslandsmetið í 200 metra bringusundi á HM í 25 metra laug í Kína í nótt. Anton Sveinn tvíbætti Íslandsmet þegar hann keppti í 100 metra bringusundi fyrr í vikunni og fylgdi því eftir með því að bæta metið í 200 metrum, nýtt Íslandsmet er 2:04,37. Tíminn skilaði Antoni í 10. sæti í greininni sem dugir ekki til úrslita. Gamla metið átti Anton sjálfur en það var 2:07,04 frá því á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug nú í nóvember. Heimsmetið í greininni er 2:00,44. Í nótt kepptu einnig Kristinn Þórarinsson og og Dadó Fenrir Jasmínuson. Kristinn var við sitt besta í 100 metra fjórsundi og synti á 54,57 sekúndum. Það skilaði honum í 24. sæti af 38 keppendum. Íslandsmetið í greininni er 54,30. Hann keppti einnig í 50 metra baksundi stuttu á eftir fjórsundinu. Hann náði sér ekki á strik og endaði í 36. sæti af 50 sundmönnum á tímanum 25,39 sekúndum. Dadó keppti í sinni fyrstu grein á heimsmeistaramóti þegar hann synti 50 metra skriðsund. Hann synti á 22,51 sem er aðeins frá hans besta tíma. Hann endaði í 54. sæti af 128 keppendum. Dadó jafnaði Íslandsmetið í greininni í nóvember þegar hann synti á 22,29 sekúndum. Kristinn hefur nú lokið leik á HM en Anton Sveinn og Dadó keppa á laugardaginn, Dadó í 50 metra skriðsundi og Anton í 50 metra bringusundi.
Sund Tengdar fréttir Anton Sveinn setti tvö Íslandsmet í sama sundinu í morgun SH-ingurinn Anton Sveinn McKee byrjaði vel á HM í 25 metra laug í Hangzhou í Kína en hann tryggði sér sæti í milliriðli í 100 metra bringusundi í morgun. 11. desember 2018 10:30 Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Elvari og félögum sópað í sumarfrí „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Sjá meira
Anton Sveinn setti tvö Íslandsmet í sama sundinu í morgun SH-ingurinn Anton Sveinn McKee byrjaði vel á HM í 25 metra laug í Hangzhou í Kína en hann tryggði sér sæti í milliriðli í 100 metra bringusundi í morgun. 11. desember 2018 10:30