Fólk hætt að hlæja að Stjörnunni út af Sveinbirni og Agli Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. nóvember 2018 14:30 Sveinbjörn Pétursson er besti markmaður deildarinnar í dag s2 sport
Stjarnan byrjaði ekki vel þetta haustið í Olísdeild karla en Garðbæingar hafa snúið genginu við og tveir bestu leikmenn deildarinnar þessa dagana spila í Garðabænum. Sveinbjörn Pétursson er búinn að loka markinu eftir að hann snéri aftur úr leikbanni í upphafi tímabils og Egill Magnússon hefur verið frábær. „Það er allt annað að sjá hann [Sveinbjörn] heldur en í fyrra. Nú er hann bara algjörlega mættur og í þessum leik, 47 prósenta markvarsla, Basti væri meira að segja ánægður með þetta,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson þegar þeir félagar voru ræddir í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld.s2 sport„Það sem Basti segir alltaf, hann segir að það skipti engu máli að verja skot og skot heldur þarftu að ná kafla til þess að liðin græði eitthvað á þessu og hann gerði það í seinni hálfleik,“ tók Jóhann Gunnar Einarsson undir. Egill skoraði níu mörk í sigri Stjörnunnar á Akureyri um helgina og er næstmarkahæstur í deildinni, níu mörkum á eftir Ásbirni Friðrikssyni en hefur leikið tveimur leikjum minna. „Þetta er ástæðan fyrir því að Stjarnan er búin að vinna þrjá í röð, komnir um miðja deild og menn eru ekki að hlæja lengur að Stjörnunni. Það er út af Sveinbirni og út af Agli,“ sagði Jóhann Gunnar. Alla umræðuna má sjá í klippunni hér að neðan.Klippa: Seinni bylgjan: Sveinbjörn og Egill frábærir fyrir Stjörnuna
Olís-deild karla Mest lesið Vinirnir vara Tiger við en honum er skítsama Golf „Fótboltinn var grimmur við okkur“ Fótbolti „Við vorum úr leik en svo komum við til baka“ Fótbolti Öll sextíu sigra liðin 0-1 undir í sínum einvígum Körfubolti Goðsagnirnar Duncan og Ginobili pössuðu upp á Popovich Körfubolti Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir stórbrotið einvígi Fótbolti 150 milljónir fylgdust með sögulegum sigri Sport Ármenningar einum sigri frá sæti í Bónus deildinni Körfubolti Aron Einar verður ekki með Þórsurum í sumar Fótbolti Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Handbolti Fleiri fréttir Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Þórir ráðinn til HSÍ Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita Fram á lífi eftir sigur gegn Haukum Stjarnan áfram í Olís deildinni Íslandsmeistararnir örugglega í úrslit Haukur meistari í Rúmeníu „Verður svakalegur leikur“ Gísli og Ómar drógust gegn meisturunum Sjáðu sigurmark Gísla gegn Veszprém Janus Daði öflugur þegar Pick Szeged féll naumlega úr keppni Viggó og Andri Már frábærir í sigrum sinna liða Gísli Þorgeir skaut Magdeburg áfram Orri sá farmiðann til Kölnar enda í tætaranum Gagnrýnir HSÍ harðlega: „Enginn metnaður til að gera betur“ Valur í kjörstöðu gegn ÍR Góður leikur Þorsteins Leó dugði ekki í Frakklandi Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur „Ég er smá í móðu“ Haraldur tekur við Fram af Rakel „Treysti bara á að allt þetta fólk mæti“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita