Björgvin: Ég klúðraði þessu Svava Kristín Grétarsdóttir skrifar 25. nóvember 2018 22:55 Björgvin í leik með ÍR. vísir/vilhelm
Björgvin Þór Hólmgeirsson, leikmaður ÍR, fékk beint rautt spjald í leik ÍR gegn Stjörnunni í Olís-deildinni í kvöld. Leikur ÍR hrundi eftir það en hann segir að það eigi ekki að skipta neinu máli hvort hann sé með eða ekki. „25-25 þegar korter er eftir og þeir gengu á lagið. Við vorum bara lélegir.“ Björgvin Þór segir að það hafi ekki verið ætlunin að brjóta á Bjarka Má og að brotið hafi líklega litið illa út. Björgvin segir sjálfur að þetta hafi ekki verið skynsamlegt hjá honum og að hann hafi einfaldlega klúðrað þessu. „Hann hleypur aftan á mig, þetta leit örugglega mjög illa út. Ég ætlaði alls ekki að brjóta illa á honum, ætlaði bara að ná í boltann en ég flæktist eitthvað í fótunum á honum. Rautt er rautt og ég klúðraði þessu bara.“ „Auðvitað var þetta bara lélegt hjá mér, ég á að vita betur. Ég hefði bara átt að leyfa honum að fara og klára sitt færi.“ Það er þó áhyggjuefni hvernig liðið spilaði síðasta korterið og segir Björgvin það enga afsökun að hann hafi verið sendur útaf, það eigi ekki að skipta neinu máli hvort hann sé með eða ekki. „Auðvitað er það áhyggjuefni, en það á ekki að skipta neinu máli. Ég er varla búinn að vera með í síðustu leikjum en þeir hafa verið að spila fáranlega vel, Arnar Freyr og Sveinn Andri sérstaklega. Það á ekki að skipta neinu máli hvort ég sé með eða ekki,“ sagði Björgvin að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Fleiri fréttir Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ HSÍ verður að fá pening frá ríkinu „Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“ „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ „Ofboðslega stolt af því að standa hér sem sigurvegari“ „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að við værum on“ „Tímabilið hefur verið rússibani“ „Slæm byrjun í seinni hálfleik varð okkur að falli“ Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Katrín Tinna til Danmerkur „Við þurfum að gera betur á öllum vígstöðvum“ Birgir Már til Amicitia Zürich Alfreð fékk heiðursorðu Ómar Ingi fór hamförum og Íslendingaliðið einu skrefi frá titli ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns „Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Sjá meira