Thompson tók þriggja stiga metið af Curry Henry Birgir Gunnarsson skrifar 30. október 2018 12:30 Klay og Curry fagna í nótt. vísir/getty
Það hefur verið beðið eftir því að Klay Thompson, leikmaður Golden State Warriors, færi í gang og hann gerði það heldur betur í nótt. Thompson skoraði 52 stig í sigri Warriors á Chicago Bulls. Það sem meira er að þá setti hann niður fjórtán þriggja stiga körfur. Það er met í NBA-deildinni. Hann þurfti aðeins 26 mínútur og 24 skot til þess að ná þessu meti. Bilun. Liðsfélagi hans, Stephen Curry, átti gamla metið sem var þrettán þriggja stiga körfur og sett í nóvember árið 2016. „Ég var á nálum því í hvert skipti sem met er í sjónmáli þá verður maður stressaður. Ég er svo heppinn að spila með þessum gaurum. Þetta var kvöld sem ég gleymi aldrei,“ sagði Thompson sem jafnaði metið í þriðja leikhluta og bætti það svo er fimm mínútur voru eftir af leiknum.Klay Thompson (52 PTS) ERUPTS for the @warriors, knocking down an #NBA RECORD 14 3-pointers! #DubNation#KiaTipOff18pic.twitter.com/8ZWIVd8HBt — NBA (@NBA) October 30, 2018 „Er við fórum út í seinni hálfleikinn þá sagði Steph mér að taka metið. Það sýnir hversu óeigingjarn hann er,“ sagði Klay en Curry óskaði honum einnig til hamingju á Instagram. Curry á metið yfir flestar þriggja stiga körfur á einu tímabili en hann skoraði 402 slíkar leiktíðina 2015-16. Við skulum svo ekki útiloka að hann taki þetta met aftur af Thompson fyrir jól.
NBA Tengdar fréttir Bucks sigraði uppgjör toppliðanna | 52 stig frá Klay Thompson Milwaukee Bucks hefur unnið fyrstu sjö leiki sína en liðið lagði Toronto Raptors, sem var einnig taplaust eftir sex leiki, í nótt. 30. október 2018 07:30 Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira
Bucks sigraði uppgjör toppliðanna | 52 stig frá Klay Thompson Milwaukee Bucks hefur unnið fyrstu sjö leiki sína en liðið lagði Toronto Raptors, sem var einnig taplaust eftir sex leiki, í nótt. 30. október 2018 07:30